Samþykkt: Lög Pírata
Lög Pírata
1. Heiti
Nafn félagsins er Píratar.
Aðsetur þess og varnarþing skal vera í Reykjavík.Ensk þýðing á heiti félagsins er Pirate Party Iceland.
Nota má hana sem hjáheiti.Skammstöfun félagsins er PP-IS.
2. Hlutverk
Félagið er stjórnmálaflokkur.
Félagið mótar sér stefnu með opnu ferli og vinnur að framgöngu hennar með þeim aðferðum sem því standa til boða.
3. Félagsmenn
Hver sem er 16 ára á árinu eða eldri getur fengið fulla aðild að félaginu.
Félagatal skal teljast til viðkvæmra persónuupplýsinga og skal meðhöndlun þess vera í samræmi við landslög.
Aðildarfélög skulu eiga rétt á afriti af félagatali sínu gegn undirritun lagalega bindandi yfirlýsingar af hálfu stjórnarmanna þess um að það verði einvörðungu notað vegna starfa innan aðildarfélagsins í samræmi við lög þessi og landslög.
Framkvæmdaráði er þó rétt og skylt að sjá til þess að listi yfir trúnaðarmenn félagsins og aðildarfélaga sé aðgengilegur almenningi.Félagar mega vera skráðir með dulnefni í félagatali.
Listi yfir trúnaðarmenn félagsins skal þó vera aðgengilegur almenningi.
Inntökubeiðnir í félagið, sem og úrsagnir skulu fara fram skriflega eða með rafrænum hætti.
Þeir sem vilja ganga í félagið skulu auðkenna sig með aðferð sem ákveðin er af framkvæmdaráði.
Skráningar og úrsagnir skulu gilda frá tímasetningu staðfestingar á móttöku.
Ákveða má félagsgjöld á aðalfundi.
Eingöngu félagsmenn mega gegna trúnaðarstöðum innan félagsins og aðildarfélaga.
Nú hefur félagsmaður sagt sig úr Pírötum og fellur þá umboð hans til að gegna trúnaðarstöðum innan Pírata og aðildarfélaga þess sjálfkrafa úr gildi.
Sama gildir ef félagsmaður gegnir á sama tíma, samkvæmt hans samþykki, trúnaðarstöðum hjá öðrum stjórnmálaflokki.
Til trúnaðarstaða telst seta í stjórnum, nefndum, ráðum eða aðrar stöður þar sem einstaklingi er treyst, stöðu sinnar vegna, fyrir upplýsingum og/eða ákvarðanatöku sem er ekki í boði fyrir almenna félagsmenn þess sama félags.
Framangreind umboð falla ekki sjálfkrafa niður ef félagið er bersýnilega stofnað í þeim tilgangi að gerast aðildarfélag Pírata og tekst það innan fjögurra mánaða frá stofnun þess.
Aðildarfélög skulu sjá til þess að framkvæmdaráð sé upplýst um það hvaða trúnaðarstöður eru hjá því og hverjir gegna þeim.
4. Aðalfundur
Aðalfundur skal haldinn á hverju ári, fyrir lok septembermánaðar.
Á aðalfundi er mörkuð stefna félagsins og teknar ákvarðanir um starf þess, skipulag og fjárreiður.
Boða skal til aðalfundar með þriggja vikna fyrirvara og með öruggum hætti.
Framkvæmdaráð hefur heimild til að fresta aðalfundi eða aukaaðalfundi um viku frá auglýstri dagsetningu, en aðeins í eitt skipti.
1/3 hluti félagsmanna getur hvenær sem er farið skriflega fram á að boðað sé til auka-aðalfundar.
Framkvæmdaráð skal þá boða til hans innan þriggja vikna.Framkvæmdaráð skipuleggur dagskrá aðalfundar.
Fundargögn aðalfundar skulu afhent félagsmönnum með rafrænum hætti samhliða fundarboði.
Verði fundargögn til eftir að boðað er til fundar skal afhenda félagsmönnum uppfærðan fundarboðspakka minnst þremur sólarhringum fyrir aðalfund.Árskýrsla félagsins og ársreikningur fylgja öðrum fundargögnum.
Allir félagsmenn sem skráðir eru 30 dögum fyrir aðalfund hafa aðgang að honum.
Allir félagsmenn skulu hafa möguleika á aðgangi að streymi af fundinum og/eða upptöku af honum.
Mættum félagsmönnum skal gert ljóst að upptökur af fundinum verða gerðar opinberar um ókominn tíma.Á aðalfundi er framkvæmdaráð ákveðið í samræmi við 7. grein.
Á aðalfundi eru tveir skoðunarmenn reikninga kjörnir með STV forgangskosningu.
Kjörstjórn tekur við framboðum í öll embætti, og tryggir að allir frambjóðendur fái sanngjarna kynningu.
Frambjóðendur í embætti skulu skila inn hagsmunaskráningu til kjörstjórnar, tveimur vikum fyrir aðalfund.
Slembivaldir framkvæmdaráðsmenn skulu skila inn hagsmunaskráningu eigi síðar en tveimur vikum eftir val þeirra.
Hagsmunaskráningar eru birtar á vefsíðu félagsins.
Nánari reglur um hagsmunaskráningu skulu útfærðar af framkvæmdaráði og háðar samþykki samkvæmt kosningu í rafrænu kosningakerfi Pírata, er skal standa í sjö sólarhringa.
Sé engum slíkum reglum að dreifa er hagsmunaskráning yfirlýsing viðkomandi þar sem hann lýsir helstu hagsmunum sínum þá stundina.Eingöngu viðstaddir félagsmenn skulu vera í slembivölum og teljast þeir vera í því nema þeir komi á framfæri yfirlýsingu um annað.
Fjarstaddur félagsmaður skal þó eiga rétt á að vera í slembivali komi hann á framfæri tilkynningu til framkvæmdaráðs eða aðalfundar skýrri og ótvíræðri yfirlýsingu um að vera í því og skal þá réttilega álitið að hann samþykki þær stöður sem hann hlýtur á grundvelli þess.
Eingöngu einn einstaklingur skal vera slembivalinn í einu.
Nú er einstaklingur slembivalinn í stöðu samkvæmt lögum þessum, hann hefur þegar verið kjörinn eða slembivalinn í stöðuna á þeim fundi, hann afþakkar stöðuna eða uppfyllir ekki skilyrði laga þessara til þess að taka við stöðunni, og skal þá endurtaka slembivalið.Annað hvert ár skal á aðalfundi kjósa þriggja manna kjörstjórn er tekur til starfa að loknum aðalfundi og þar til næsta kjörstjórn tekur við.
Fulltrúinn sem hlýtur besta kosningu skal vera formaður nema kjörstjórn ákveði annað.
Aðilar í kjörstjórn skulu ekki gegna öðrum trúnaðarstöðum á vegum félagsins eða aðildarfélaga á meðan setu þeirra stendur.
Kjörstjórn ber ábyrgð á framkvæmd kosningar í framkvæmdaráð ásamt öðrum hlutverkum sem henni er falið með lögum.
Ákvarðanir hennar skulu teknar með óháðum og óhlutdrægum hætti.
5. Fundarhald (félagsfundir)
Fundir félagsins skulu að jafnaði vera opnir öllum.
Allir hafa málfrelsi á fundum.
Fundarmenn geta lagt fram tillögur á fundum.
Kosningar á fundum skulu að jafnaði fara fram með handauppréttingu.
Sé óskað eftir því má fundarstjóri ákveða að hafa atkvæðagreiðslur skriflegar eða rafrænar.
Sé óskað eftir því, og 5% fundarmanna en aldrei færri en þrír samþykkja það, skulu kosningar vera leynilegar.
Í kosningum á fundum eru ákvarðanir teknar með einföldum meirihluta.
Fundarsköp allra reglulegra ráða og nefnda á vegum Pírata skulu skilgreind og aðgengileg félagsmönnum.
Liggi ekki fyrir skilgreind fundarsköp á fundi Pírata skal stuðst við Robert’s Rules of Order.Boða skal til almennra félagsfunda með viku fyrirvara með óvefengjanlegum hætti.
6. Lög og stefnumál
Þessi lög eru öll lög félagsins, en þeim má breyta á aðalfundi með ? hlutum atkvæða.
Einnig má breyta þeim með 2/3 atkvæða á kosningakerfi flokksins.Samfara þessum lögum skal vera grunnstefnuskjal félagsins.
Gilda sömu reglur um breytingar á grunnstefnu og á lögum.Tillögur að breytingum á lögum eða grunnstefnu skulu liggja opinberlega fyrir á vettvangi flokksins minnst tveimur vikum áður en kosið skal um þær.
Stefnu má ákveða með einföldum meirihluta í gegnum rafræn kosningakerfi félagsins.
Stefna má aldrei ganga gegn grunnstefnu félagsins.
Stefna skal alltaf rökstudd og hafa tilvísun í fyrri ákvarðanir félagsins.
Með samþykki 5% fundarmanna á almennum félagsfundi, en lágmark þriggja, skal vísa tillögu að stefnu til rafrænna kosninga.
Að jafnaði skulu rafrænar kosningar standa yfir í 6 daga.
Sé þörf á skjótri ákvarðanatöku má leggja til, með samþykki framkvæmdaráðs, hraðmeðferð á tillögu, en hún stendur þá yfir í sólarhring.
Slíka ákvörðun þarf að staðfesta með hefðbundnum kosningum sem fara af stað samtímis.
Skulu sérstök boð vera send til félagsmanna um að slík tillaga sé til kosningar.Sérhver félagsmaður má stofna málefnahóp í kringum stefnumál.
Tilkynna skal félagsmönnum um stofnun vinnuhóps.Öllum er heimilt að taka þátt í málefnahóp, fundir þeirra skulu alltaf vera opnir.
Málefnahópur skal velja sér ábyrgðarmann og fundarritara.
Málefnahópur skilar reglulega skýrslu til félagsmanna um störf sín, í það minnsta þegar starf hópsins lýkur.
7. Framkvæmdaráð
Framkvæmdaráð annast almenna stjórn og rekstur félagsins.
Í framkvæmdaráði sitja sjö manns.
Framkvæmdaráð skiptir með sér hlutverkum.
Þó skal Condorcet-sigurvegari kosninga til framkvæmdaráðs, sé slíkur til, verða formaður ráðsins nema hann biðjist undan.
Auk formanns skulu skipaðir gjaldkeri, ritari og alþjóðafulltrúi.Félagsmenn aðrir en kjörnir fulltrúar geta átt sæti í framkvæmdaráði.
Þó skal enginn sitja meira en tvö ár samfleytt í framkvæmdaráði.Fimm meðlimir framkvæmdaráðs eru kjörnir í kosningu á aðalfundi, og fimm til vara.
Kosning skal fara fram með STV forgangskosningu.Tveir meðlimir framkvæmdaráðs eru valdir með slembivali, og tveir til vara.
Allir félagsmenn sem hafa ekki verið slembivaldir í framkvæmdaráð eru í slembivalinu.Slembival skal fara fram á eftir kosningu.
Framkvæmdaráð skal funda að lágmarki mánaðarlega, og skal boða alla aðalfulltrúa og varafulltrúa til fundarins með viku fyrirvara.
Fundir framkvæmdaráðs skulu vera opnir félagsmönnum nema undir þeim liðum er fjallað er um einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga sem sanngjarnt er og eðlilegt að leynt fari.
Slík mál skulu afgreidd í upphafi eða lok fundar, eftir því sem kostur er.Halda skal fundargerð fyrir hvern fund framkvæmdaráðs og skal hún birt innan hæfilegs tíma.
Nú inniheldur fundargerð upplýsingar um einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga sem sanngjarnt er og eðlilegt að leynt fari, eða af öðrum ástæðum má ekki birta samkvæmt landslögum, og skal þá samt sem áður birta fundargerðina í heild að brottföllnum þeim upplýsingum.Framkvæmdaráðsfundur telst löglegur ef a.m.k. 4 aðalmenn mæta eða senda varamenn sína.
Ef þrír fundir framkvæmdaráðs í röð falla niður vegna vanskipunar skal boðað til aukaaðalfundar.
Boða má fundi til framkvæmdaráðs með minna en viku fyrirvara, þrátt fyrir grein 7.7, en boðun og framkvæmd þarf, að öðru leiti en kemur fram í grein þessari, að vera í samræmi við ákvæði laga þessara um fundi framkvæmdaráðs.
Fyrirliggjandi staðreyndir máls verða að styðja að brýnir og mikilsverðir hagsmunir liggi því til stuðnings að afgreiðsla máls fari fram fyrir tímasetningu næsta fundar sem hægt er að halda með hinum venjulega fyrirvara.
Þá teljast ákvarðanir teknar á slíkum fundi ekki gildar nema sex sitjandi fulltrúar framkvæmdaráðs veiti þeim brautargengi.
Sé ákvörðun samþykkt með þessum hætti tekur hún gildi án tafar en framkvæmdaráð skal þó á næsta fundi þess, boðuðum með venjulegum fyrirvara, taka málið aftur til afgreiðslu, til samþykktar eða synjunar.
Við töku ákvarðana á grundvelli þessarar greinar skal gæta meðalhófs.Nú fer einhver varanlega eða tímabundið úr framkvæmdaráði og skal efsti varamaður taka við af honum á meðan fjarveru stendur með þeim réttindum og skyldum sem fylgja.
Sé um einstaka fundi að ræða skal efsti viðstaddi varamaður á hverjum fundi fyrir sig hljóta þau réttindi og skyldur á meðan þeim honum stendur.
Varamaður valinn með sömu aðferð og fjarstaddi fulltrúinn skal eiga forgang.
Varamaður telst eingöngu sem sitjandi fulltrúi í skilningi laga þessara á meðan hann hefur réttindi og skyldur aðalfulltrúa.
8. Úrskurðarnefnd
Ágreining um framkvæmd, túlkun og brot á lögum þessum skal vísa til úrskurðarnefndar sem úrskurðar í málinu.
Úrskurðarnefnd er skipuð þremur félagsmönnum og skulu þeir kosnir á aðalfundi ár hvert auk tveggja varamanna.
Fulltrúar í úrskurðarnefnd skulu ekki gegna öðrum trúnaðarstörfum fyrir flokkinn á meðan þeir sitja í úrskurðarnefnd.Úrskurðarnefnd úrskurðar sjálf um hæfi sitt og einstakra nefndarmanna í hverju máli fyrir sig. Varamaður tekur sæti í nefndinni þegar um vanhæfi aðalmanns í tilteknu máli er að ræða.
Úrskurðarnefnd tekur ákvarðanir aðeins í samræmi við lög félagsins og landslög.
Komi upp grunur um saknæmt athæfi skal úrskurðarnefnd vísa málinu til lögreglu.
Komi upp ágreiningur um brottrekstur skal úrskurðarnefnd úrskurða um málið.
Úrskurður úrskurðarnefndar er bindandi.
8.a. Trúnaðarráð
Framkvæmdaráð tekur við tilnefningum og skipar þrjá einstaklinga í trúnaðarráð.
Skipun ráðsins skal staðfest á gildum félagsfundi.Trúnaðarráð hefur með höndum sáttamiðlun og aðstoð þegar upp kemur ágreiningur eða annar vandi í samskiptum og starfi félagsmanna.
Trúnaðarráð er óháð í störfum sínum.
Aðildarfélög Pírata, framkvæmdaráð og einstaka félagsmenn geta vísað málum til trúnaðarráðsins en það getur einnig látið til sín taka að eigin frumkvæði.
Trúnaðarráð tekur engar bindandi ákvarðanir en getur vísað málum til úrskurðarnefndar eða eftir atvikum til lýðræðislegrar afgreiðslu á viðeigandi vettvangi félagsins.
Við val á fulltrúum í trúnaðarráð skal meta sérstaklega hæfni í mannlegum samskiptum, sjálfstæðum vinnubrögðum og almennt traust meðal flokksmanna.
Æskilegt er að þeir hafi áður gegnt trúnaðarstörfum fyrir flokkinn.
Fulltrúar í trúnaðarráði skulu ekki gegna öðrum trúnaðarstörfum fyrir flokkinn á meðan þeir sitja í trúnaðarráði.Skipunartími fulltrúa í trúnaðarráði helst í hendur við skipunartíma framkvæmdaráðs.
9. Starfsmenn
Framkvæmdaráð er heimilt að ráða framkvæmdastjóra fyrir hönd félagsins ef fjárreiður leyfa.
Framkvæmdastjóri skal hafa frumkvæði um að ráða almennt starfsfólk félagsins, en framkvæmdaráð skal samþykkja allar ráðningar.
Félagsdeildum er heimilt að ráða til sín starfsfólk í tengslum við kosningabaráttu eða önnur tímabundin verkefni.
Laun framkvæmdastjóra og annara starfsfólks skal ekki vera hærra en þingfararkaup.
Fastráðning starfsfólks er háð samþykki félagsfundar.
Upplýsingar um starfsfólk skulu koma fram á vefsíðu félagsins.
10. Aðildarfélög
Heimilt er að líta svo á að lögaðilar séu aðildarfélög Pírata að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.
Félag sem óskar eftir að teljast aðildarfélag Pírata sendir umsókn um slíkt til framkvæmdaráðs, ásamt lögum sínum.Framkvæmdaráð úrskurðar hvort tilvonandi aðildarfélag uppfylli þau skilyrði sem hér eru lögð fram.
Sé svo skal aðildarfélagið tafarlaust hljóta aðild, en að öðrum kosti skal því tilkynnt um þá ágalla sem á umsókninni eru.Aðildarfélögum er óheimilt að ganga gegn lögum eða grunnstefnu Pírata.
Úrskurðarnefnd er heimilt að fella niður aðild félags sem brýtur gegn lögum eða grunnstefnu.Framkvæmdaráð heldur sameiginlega félagaskrá fyrir öll aðildarfélög Pírata.
Allir félagar aðildarfélags teljast jafnframt félagar í Pírötum.Aðildarfélagi ber að skila fundargerð aðalfundar, ársskýrslu og bókhaldsgögnum sínum til framkvæmdaráðs.
Hafi slík gögn borist fyrir lok júnímánaðar telst aðildarfélag vera virkt.Aðildarfélagi ber að skilgreina í lögum sínum hvenær það teljist starfhæft.
Uppfylli aðildarfélag ekki eigin skilyrði um starfhæfni skal því slitið.
Einnig skal aðalfundi Pírata heimilt að boða aðalfund í eða slíta óvirku aðildarfélagi.Eignir aðildarfélaga skulu renna til Pírata við félagsslit.
Starfssvæði svæðisbundins aðildarfélags skal vera minnst eitt sveitarfélag.
Einungis skal eitt svæðisbundið aðildarfélag starfa í hverju sveitarfélagi.
Þó skal heimilt að stofna aðildarfélag sem nær yfir heilt kjördæmi með aðkomu allra virkra aðildarfélaga innan þess kjördæmis.Úrskurðarnefnd sker úr um ágreining um starfssvæði.
Aðildarfélagi er heimilt að skipta starfsemi sinni frekar.
Aðildarfélagi ber að gera framkvæmdaráði grein fyrir slíkri skiptingu að því leyti sem hún hefur áhrif á félagaskráningu.Aðildarfélögum skal heimilt að kveða á um í lögum sínum að kjörstjórn Pírata hafi yfirumsjón með persónukjöri á vegum aðildarfélagsins.
Sé heimildin nýtt skal kjörstjórn Pírata þá taka að sér það hlutverk í samræmi við lög aðildarfélagsins.
Nú er kosningarferli innan aðildarfélags í gangi þegar ný kjörstjórn Pírata er valin og skal hún þá taka við framkvæmd þeirra kosninga sem í gangi eru ásamt þeim gögnum er fyrri kjörstjórn höfðu borist.
11. Fjármál
Bókhaldsár félagsins er almanaksárið.
Félagið skal lúta lögum um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og um upplýsingaskyldu þeirra.
Bókhald félagsins skal vera opið almenningi á vefsíðu félagsins.
Það skal uppfært jafn óðum, með fyrirvara um villur og samþykki aðalfundar.Samþykktir ársreikningar skulu liggja fyrir á vefsíðu félagsins.
Félaginu er eingöngu heimilt að taka lán fyrir rekstri og öðrum útgjöldum félagsins ef áætlaðar tekjur eru fyrirsjáanlegar og öruggar.
Engin lán sem binda félagið mega fara fram án samþykkis framkvæmdaráðs.Félaginu er ekki heimilt að lána öðrum lögaðilum fé.
Öll fjárútlát sem fara yfir 200.000 kr, miðað við neysluvísitölu 1. október 2012 skulu vera skriflega samþykkt af framkvæmdastjóra eða gjaldkera.
Fé sem situr eftir í sjóðum eftir bókhaldsárið skal renna í sjóð næsta árs.
12. Þáttaka í kosningum
Þátttaka í kosningum er á ábyrgð aðildarfélaga á kjörsvæði.
Hafi aðildarfélögum innan kjördæmis til Alþingiskosninga ekki komist saman um annað skal starfa kjördæmisráð skipað einum fulltrúa fyrir hvert sveitarfélag þar sem Píratar hafa starfsemi.
Starfi engin aðildarfélög innan kjördæmis til alþingiskosninga er framkvæmdaráði heimilt að standa fyrir kjöri á lista fyrir það kjördæmi.
Skulu allir félagsmenn Pírata hafa kosningarétt í slíku kjöri.
Þeir sem raðast í fimm efstu sæti listans bera ábyrgð á þátttöku hans í kosningum.Framkvæmdaráð annast samræmingu kosningabaráttu á landsvísu í samráði við aðildarfélögin.
Framkvæmdaráði er heimilt að útbúa kosningastefnuskrá fyrir Alþingiskosningar út frá samþykktri stefnu.Heimilt er að stofna til kosningabandalags við Alþingiskosningar.
Aðildarfélögum er heimilt að veita samskonar heimild í lögum sínum hvað varðar sveitarstjórnarkosningar.
Allir félagsmenn, sem kjörgengir eru til þeirra kosninga sem um ræðir, geta gefið kost á sér á framboðslista.
Raða skal á framboðslista samkvæmt úrslitum forgangskosningar með Schulze-aðferð.
Þó skal frambjóðendum heimilt að víkja sæti og taka lægra sæti á lista en kjör hans segir til um, og færast þá aðrir frambjóðendur ofar á lista.
Starfsmanni er ekki heimilt að taka fyrsta eða annað sæti.
Hafni frambjóðandi sæti eða geti af öðrum sökum ekki tekið því skal raða á lista með endurtalningu atkvæða að brottfelldum frambjóðanda.Nægi fjöldi frambjóðenda að þessum breytingum loknum ekki lögbundnu lágmarki fyrir fullskipaðan framboðslista er ábyrgðaraðila listans heimilt að bæta nöfnum þeirra sem það samþykkja í sæti á eftir þeim sem kjörnir hafa verið á framboðslistann.
Framkvæmdaráð skal sjá til þess að kynningarferli á þeim sem gefa kost á sér á framboðslista endurspegli sem best gagnrýna hugsun og vel upplýstar ákvarðanir.
13. Störf þingflokks og annarra kjörinna fulltrúa
Þingmenn Pírata eru ábyrgir gagnvart félaginu í heild.
Sveitarstjórnarfulltrúar eru ábyrgir gagnvart því svæðisbundna aðildarfélagi sem starfar í sveitarfélagi þeirra.
Fundir þingflokka og sveitarstjórnarflokka mega vera lokaðir þrátt fyrir ákvæði 5. gr. séu málefnalegar ástæður fyrir því.
Haldi þingflokkur eða sveitarstjórnarflokkur lokaðan fund hefur hann tilkynningarskyldu til félagsmanna um efni fundarins og ástæður fyrir lokun.
Framkvæmdaráð getur óskað eftir því að kjörnir fulltrúar mæti á fund sinn.
Fulltrúar í þingflokkum og sveitarstjórnarflokkum skiptast á að gegna þeim embættum sem skylt er að þau taki sér, eigi lengur en til árs í senn.
Tilheyri þingflokkur minni hluta á Alþingi og geti ekki fengið aðstoðarmann til starfa á þinginu nema með því að hafa formann, skal einn þingmaður gegna embætti formanns félagsins, eitt þing í senn.
Skal hann slembivalinn eftir þingkosningar, en gangi það í keðju þar eftir.
Hann hafi ekki aukin pólitísk völd og afþakki formannsálag á þingfararkaup.
Þingflokksformaður getur ekki einnig verið formaður félagsins.Aðstoðarmenn þingflokka eða sveitarstjórnarflokka skulu að jafnaði starfa fyrir flokkinn sem heild.
14. Framfarafundur
Framfarafundur skal haldin á 8 vikna fresti.
Framkvæmdaráð skal boða til fundarins með a.m.k. viku fyrirfara og skal hann auglýstur samkvæmt reglum flokksins sem varða tilkynninga og auglýsingaskyldu fundarhalda.
Framkvæmdaráð sér um að skipuleggja fundinn ásamt þingmönnum og málefnahópum séu þeir til staðar.
Á framfarafundi skal koma fram ítarleg úttekt á störfum þinghóps, framkvæmdaráðs og málefnahópa.
Á fundinum skal fara fram umræða um störf þinghóps, framkvæmdaráðs og málefnahópa.
15. Félagsslit
Félagsslit geta aðeins farið fram sé tillaga um slíkt á auglýstri dagskrá löglegs aðalfundar og samþykkt með ¾ hluta fundarmanna.
Við félagsslit skal ráðstafa eða skipta eignum félagsins í samræmi við tilgang þess og grunnstefnu.
Tilheyrandi mál: | Aðlögun að gildandi lögum |
---|
Útgáfur
# | Staða | Höfundur | Lýsing |
---|---|---|---|
1 | Úrelt | smari | |
2 | Úrelt | odin | Við grein 6.1 bætist svohljóðandi málsgrein: „Einnig má breyta þeim með 2/3 atkvæða á kosningakerfi flokksins.“ |
3 | Úrelt | odin | Grein 6.3 orðist svo: „Tillögur að breytingum á lögum eða grunnstefnu flokksins skulu liggja fyrir á vettvangi flokksins minnst tveimur vikum fyrir aðalfund.“ |
4 | Úrelt | odin | Í núgildandi lögum er gert ráð fyrir að öll starfsemi Pírata fari fram undir merkjum eins heildarfélags. Reynslan af þátttöku Pírata í kosningum til Alþingis 2013 sýnir að þetta sé ekki vænlegt til árangurs til framtíðar. Því er hér lagt til að önnur félög geti orðið formlegur hluti af Pírötum, en nú þegar er starfandi félagið Ungir Píratar. Fyrir liggur að það er ekki í takt við grunnstefnu Pírata um að draga úr miðstýringu og miðlægni að allt starf og stefnumótun Pírata fari fram í gegnum stakt félag. Þó er nauðsynlegt að hafa í huga ákveðnar gildrur þegar kemur að starfsemi aðildarfélaga, eins og víkur að síðar. Aðildarfélög geta verið af tvennu tagi, annars vegar almenn aðildarfélög – líkt og Ungir Píratar – eða svæðisbundin aðildarfélög – en fyrirséð er að stofnuð verði félög á borð við Pírata í Reykjavík og Pírata á Vestfjörðum. Ástæða þess að sérstaklega er gert ráð fyrir svæðisbundnum aðildarfélögum er sú að Píratar hafa það að markmiði sínu að taka þátt í kosningum á Íslandi, og því eðlilegt að skipting Pírata haldist í hendur við skiptingu íslenskrar stjórnsýslu. Af sömu ástæðu er þess krafist að starfssvæði aðildarfélags sé ekki minna en eitt sveitarfélag. Vert er að benda á að ekkert kemur í veg fyrir að aðildarfélag Pírata samanstandi aftur af aðildarfélögum, og því ekkert því til fyrirstöðu að fjölmennari sveitarfélög skipti starfsemi sinni upp með nákvæmari hætti. Samkvæmt tillögum þessum er frelsi aðildarfélaga talsvert, en aðildarfélögum er einungis gert að brjóta ekki gegn grunnstefnu eða lögum Pírata. Þetta er gert til að draga úr líkum á því að stöðnun í einhverskonar kjarna verði þess valdandi að Píratar í heild festist í sama farinu og taki ekki áhættu þegar kemur að því að vinna að málefnum félagsins. Frelsi til þess að gera tilraunir er forsenda þess að starfshættir haldi áfram að þróast. Þegar stuðst er við aðildarfélög, frekar en félagsdeildir, eru nokkur atriði sem nauðsynlegt er að hafa í huga. Helst þessara atriða er hættan á því að aðildarfélag verði óstarfhæft, þ.e., að félagið sé enn til og eigi jafnvel eignir, en ekkert gerist í því, þar sem félagsmenn eru orðnir of fáir eða stjórn félagsins bregðist ekki við. Tvær aðskildar ráðstafanir eru gerðar til að bregðast við þessu. Annars vegar er gerð krafa um að aðildarfélög skili ákveðnum lágmarksgögnum til Pírata (framkvæmdaráðs) í tæka tíð fyrir aðalfund Pírata; hins vegar að aðildarfélög setji sér lágmarksskilgreiningu á starfhæfni. Uppfylli aðildarfélag ekki þessi skilyrði er veitt heimild til að slíta því. Til að tryggja að Píratar missi ekki ráðstöfunarrétt á eignum aðildarfélaga er þess krafist að eignir aðildarfélaga renni til Pírata við slit þeirra. Að öðru leyti snýr breytingartillagan að atriðum sem varða skipulag á aðkomu Pírata að kosningum og tengsl milli flokksins og kjörinna fulltrúa sem honum tengjast. Gert er ráð fyrir að alþingismenn Pírata muni starfa fyrir flokkinn í heild – það er, fyrir öll aðildarfélög hans. Aðildarfélögum er eftirlátið að skilgreina hlutverk sveitarstjórnarfulltrúa, og bera þeir engar skyldur gagnvart framkvæmdaráði. Þó er sérstaklega tekið fram að framkvæmdaráð geti óskað eftir því að kjörnir fulltrúar – sem eru meðal annars sveitarstjórnarmenn – mæti á framkvæmdaráðsfund. Æskilegt er að a.m.k. grunnmynstur þessa fyrirkomulags verði orðið virkt fyrir áramót, en hugur hefur verið í ýmsum Pírötum að taka þátt í sveitarstjórnarkosningum 2014. |
5 | Hafnað | bjornlevi | Málsgrein 5.8 og 6.7 stangast á þar sem grein 5.8 (í kaflanum um félagsfundi) segir: "5.8. Í kosningum á fundum eru ákvarðanir teknar með einföldum meirihluta." og 6.7 (kaflanum um lög og stefnumál) segir: "6.7. Með samþykki 5% fundarmanna á almennum félagsfundi, en lágmark þriggja, skal vísa tillögu að stefnu til rafrænna kosninga." Á félagsfundum eru ákvarðanir teknar með einföldum meirihluta nema þegar vísa á tillögum til rafrænna kosninga. Tilgangurinn með grein 6.7 er að gefa fundinum minna vægi að ákveða hvaða mál fara inn í kosningakerfið - en að sama skapi þá þarf ekki nema þrjá á fundum þar sem allt að 60 manns sækja til þess að koma hvaða máli sem er inn í kosningakerfið, hversu vel eða illa sem tillagan er unnin. |
6 | Úrelt | bjornlevi | Tilgangurinn með þessari breytingu er að skilgreina betur hvað er löglegt þegar engin kosning hefur verið í yfir þrjá mánuði (virkur félagsmaður er sá sem hefur tekið þátt í rafrænni kosningu á síðastliðnum 3 mánuðum). Einnig til þess að skýra að það eru ekki bara virkir félagsmenn sem mega taka þátt í kosningum - eða að ef færri en 10% virkra taki þátt en til dæmis 90% óvirkra ... að kosningin sé ekki ólögleg. Niðurstaðan er sú að ef það er enginn 'virkur' félagsmaður út af því að það hefur engin kosning átt sér stað innan þriggja mánaða þá er, eins og áður, ekkert lágmark fyrir þátttöku. Ef færri en 10% virkra meðlima taka þátt að ákveðinn fjöldi nýrra kjósenda geta gert kosninguna löglega. Fjöldi virkra félagsmanna færi þá þannig fram að nýliðin kosning er talin með þegar ákvarðað er hverjir eru 'virkir' félagsmenn. |
7 | Úrelt | odin | Í gildandi lögum Pírata segir að raðað skuli á framboðslista eftir niðurstöðu STV forgangskosningar. Vandinn er sá að STV-kosning skilar ekki röðuðum lista, heldur mengi. Það er því ómögulegt að raða á framboðslista – sem er raðaður – með STV. Þess í stað er hér lagt til að talningin fari fram með Schulze-aðferð, sem getur skilað tölusettum lista, þó hún sé oftast notuð til að kjósa í eitt sæti. Ekki er 100% víst að Schulze-talning skili sömu frambjóðendum á listann eins og STV-kosning myndi gera, en líkurnar á að veruleg breyting sé á hópnum eru hverfandi. Þá er hér tekið fram að ekki sé nauðsynlegt að fylgja niðurstöðum kosninga algjörlega, en frambjóðendur geta óskað eftir að færa sig neðar á lista. Þá er gert ráð fyrir því að frambjóðendur hafni sætum sínum. Þessar breytingar eru gerðar í ljósi reynslunnar af röðun á lista fyrir síðustu Alþingiskosningar. Að lokum er tekið fyrir að starfsmenn Pírata taki að sér efstu sæti á framboðslistum Pírata. Ástæða þess er einföld: Þeim sætum fylgir umtalsverð vinna, og ekki er talið mögulegt að sinna bæði hlutverki frambjóðanda og öðru starfi samhliða. Starfsmönnum er frjálst að láta af starfi sínu á meðan kosningabaráttu stendur. |
8 | Hafnað | jason | |
9 | Hafnað | jason | |
10 | Úrelt | Kjarrval | Persónuverndarlög skilgreina stjórnmálaskoðanir sem viðkvæmar persónuupplýsingar. Því verður að takmarka mjög bæði aðgang og notkunarheimildir á félagatali. |
11 | Úrelt | Kjarrval |
|
12 | Úrelt | Kjarrval |
|
13 | Úrelt | Kjarrval | Núgildandi ákvæði hljóða upp á að framkvæmdaráð útfæri nánari reglur en háðar samþykki félagsfundar. Nú erum við hins vegar komin með rafrænt kerfi og tilvalið að færa ákvarðanatökuna þangað. Einnig er lögð til afar grunn lýsing á hagsmunaskráningum ef engar nánari reglur eru í boði. |
14 | Úrelt | Kjarrval |
|
15 | Úrelt | Kjarrval |
|
16 | Úrelt | Kjarrval |
|
17 | Úrelt | Kjarrval |
|
18 | Úrelt | Kjarrval |
|
19 | Úrelt | Kjarrval |
|
20 | Samþykkt | odin | Lög uppfærð til samræmis við niðurstöður aðalfundar 2015. Sniði einnig breytt til að gera breytingaskrár skiljanlegri í framtíðinni. |
21 | Hafnað | bjornlevi | Greinargerð Helsti munurinn á þessari greinog þeirri sem hún kemur í staðinn fyrir er að ábyrgðin er ekki bein frá félaga til kjörins fulltrúa. Lög, grunnstefna og ályktanir eru milliliðurinn sem þýðir að þó félagar almennt hafi ekki gefið umboð sitt til viðkomandi fulltrúa þá hafi þeir samt leið til áhrifa. Skýrt hefur verið hvar ábyrgð kjörinna fulltrúa liggur en hún liggur hjá Pírötum á því svæði sem þeir hafa umboð frá. Í þingkosningum eru þetta félög Pírata innan kjördæmis, í sveitarstjórn félag Pírata í viðkomandi sveitarfélagi. Þessi lagabreyting gerir aðildafélögum og kjördæmisráðum kleift að takmarka kosningarétt í prófkjörum við það svæði sem fulltrúar munu hafa umboð frá. Einnig tryggir þessi breyting að fulltrúar beri ábyrgð gagnvart skráðum Pírötum á umboðssvæði sínu þó þeir félagsmenn séu ekki skráðir í viðkomandi aðildafélög. Þar sem kjörnir fulltrúar bera ábyrgð gagnvart lögum, grunnstefnu og ályktunum félagsins í heild þá geta allir félagar haft óbein áhrif á störf allra kjörinna fulltrúa í gegnum breytingar á lögum, grunnstefnu og með ályktunum. Þó á ekki að vera hægt að ganga gegn sjálfsákvörðunarréttinum. |
22 | Tillaga | agust76 |