Tillaga: Kosningaréttur í prófkjöri
Félagslög Pírata í Suðvesturkjördæmi breytast með eftirfarandi hætti:
- Við grein 7.4 bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
> Í kosningu um framboðslista hafa þó kosningarétt allir félagar í Pírötum sem hafa verið félagar í Pírötum í að minnsta kosti 30 daga samfellt.
Útgáfur
# | Staða | Höfundur | Lýsing |
---|---|---|---|
1 | Tillaga | b | Allir sem hafa verið Píratar í 30 daga fái að kjósa í prófkjöri Pírata í Suðvesturkjördæmi, en ekki bara þeir sem eru skráðir í svæðisfélagið Píratar á Suðvesturkjördæmi. Fyrir breytingu hljóðar umrædd grein svo: > 7.4. Atkvæðarétt innan rafræns kosningakerfis Pírata hafa bæði stofnfélagar félagsins og þeir félagsmenn sem jafnframt hafa verið félagar í Pírötum í að minnsta kosti 30 daga samfellt. Píratar í Suðvesturkjördæmi eru fæstir skráðir í félagið. Sjálfvirk skráning útfrá lögheimili er ekki til staðar. Mun einfaldara er að binda kosningarétt einungis við skráningu í Pírata. |