Samþykkt: Frjáls og opinn hugbúnaður í stjórnsýslunni
Með tilliti til:
- Aðgerðaáætlunar fyrir innleiðingu frjáls og opins hugbúnaðar hjá opinberum aðilum ( http://www.forsaetisraduneyti.is/media/utvefur/adgerdaaaetlun_fyrir_innleidingu_frjals_og_opins_hugbunadar_lokaskil.pdf )
- Greinar §4.4 í grunnstefnu Pírata um upplýsingar á opnum gagnasniðum
álykta Píratar í Reykjavík að:
Áhersla skuli lögð á að nýta frjálsan og opinn hugbúnað á öllum stigum stjórnsýslu og þjónustu sveitarfélagsins þar sem því verður komið við.
Efla skuli fræðslu um þá valkosti sem bjóðast í hugbúnaðargeiranum.
Greinargerð:
Við teljum að með því að efla notkun á frjálsum og opnum hugbúnaði megi auka gagnsæi, auka skilvirkni í stjórnsýslunni og draga úr kostnaði við hugbúnað hjá sveitarfélaginu öllu.
Tillaga þessi hefur verið samþykkt með atkvæðagreiðslu.
Tilheyrandi mál: | Frjáls og opinn hugbúnaður í stjórnsýslunni |
---|
Útgáfur
# | Staða | Höfundur | Lýsing |
---|---|---|---|
1 | Samþykkt | tharfagreinir |