Frjáls og opinn hugbúnaður í stjórnsýslunni
Tillaga þessi hefur verið samþykkt með atkvæðagreiðslu.
Málsnúmer: | 8/2014 |
---|---|
Tillaga: | Frjáls og opinn hugbúnaður í stjórnsýslunni |
Höfundur: | tharfagreinir |
Í málaflokkum: | Stjórnsýsla og lýðræði |
Upphafstími: | 07/04/2014 22:11:15 |
Atkvæðagreiðsla hefst: | 19/04/2014 22:11:15 (0 minutes) |
Atkvæðagreiðslu lýkur: | 25/04/2014 22:11:15 (0 minutes) |
Atkvæði: | 5 |
Já: | 5 (100,00%) |
Nei: | 0 |
Niðurstaða: | Samþykkt |
Meirihlutaþröskuldur: | 50,00% |
Umræða
Þessu máli lauk fyrir nokkru síðan og er því krafist innskráningar til að sjá umræðu.
Með tilliti til:
- Aðgerðaáætlunar fyrir innleiðingu frjáls og opins hugbúnaðar hjá opinberum aðilum ( http://www.forsaetisraduneyti.is/media/utvefur/adgerdaaaetlun_fyrir_innleidingu_frjals_og_opins_hugbunadar_lokaskil.pdf )
- Greinar §4.4 í grunnstefnu Pírata um upplýsingar á opnum gagnasniðum
álykta Píratar í Reykjavík að:
Áhersla skuli lögð á að nýta frjálsan og opinn hugbúnað á öllum stigum stjórnsýslu og þjónustu sveitarfélagsins þar sem því verður komið við.
Efla skuli fræðslu um þá valkosti sem bjóðast í hugbúnaðargeiranum.
Greinargerð:
Við teljum að með því að efla notkun á frjálsum og opnum hugbúnaði megi auka gagnsæi, auka skilvirkni í stjórnsýslunni og draga úr kostnaði við hugbúnað hjá sveitarfélaginu öllu.