Miðstöð innanlandsflugsins
Málsnúmer: | 11/2018 |
---|---|
Tillaga: | Miðstöð innanlandsflugsins |
Höfundur: | epli |
Í málaflokkum: | Ályktanir |
Upphafstími: | 28/03/2018 15:58:31 |
Atkvæðagreiðsla hefst: | 02/04/2018 15:58:31 (0 minutes) |
Atkvæðagreiðslu lýkur: | 07/04/2018 15:58:31 (0 minutes) |
Atkvæði: | 47 (2 sitja hjá) |
Já: | 38 (80,85%) |
Nei: | 9 |
Niðurstaða: | Samþykkt |
Meirihlutaþröskuldur: | 50,00% |
Umræða
Þessu máli lauk fyrir nokkru síðan og er því krafist innskráningar til að sjá umræðu.
Stefna um miðstöð innanlandsflugsins
Með tilliti til grunnstefnu Pírata:
1.1. Píratar leggja áherslu á gagnrýna hugsun og vel upplýstar ákvarðanir.
Með vísan í:
Hlutverk Reykjavíkurflugvallar í öryggiskerfi landsins, skýrsla 2017
Flugvallarkostir á höfuðborgarsvæðinu, skýrsla stýrihóps s.k. „Rögnunefndar“ júní 2015.
Fluglestin - Hraðlest REY-KEF
Álykta Píratar í Reykjavík að:
Stefnt er að því að miðstöð innanlandsflugsins flytjist úr Vatnsmýrinni. Áður en til þess kemur þarf annar flugvöllur á suðvesturhorni landsins að hafa tekið við miðstöð innanlandsflugsins.
Á meðan miðstöð innanlandsflugsins er í Vatnsmýrinni þarf að viðhalda Reykjavíkurflugvelli þannig að hann geti gegnt hlutverki sínu með sóma.
Fullkanna þarf mögulegar staðsetningar miðstöðvar innanlandsflugsins á suðvesturhorninu og taka síðan ákvörðun um uppbyggingu með lýðræðislegum hætti.
Hraðlest REY-KEF yrði mikil samgöngubót fyrir farþega í millilandaflugi. Lestin myndi nýtast miðstöð innanlandsflugsins og tengja sveitarfélögin á SV-horninu saman búsetu- og atvinnulega. Hún myndi draga úr bílaumferð, vera umhverfisvæn og auka umferðaröryggi. Áfram verði unnið að rannsóknum og hagkvæmniathugunum.
Skoða þarf nýja staðsetningu miðstöðvar innanlandsflugsins í samhengi við mögulega hraðlest. Gæta þarf þess að skipulag lestarinnar og val á stöðvum falli vel að skipulagi og áætlun um Borgarlínu.
Greinargerð
Miðstöð innanlandsflugsins mun fara úr Vatnsmýrinni
Reykjavíkurborg hefur ákveðið að miðstöð innanlandsflugsins fari úr Vatnsmýrinni. Ástæðurnar eru að það er þjóðhagslega hagkvæmt að nýta Vatnsmýri sem byggingarland og það byggingarland er betur staðsett með tilliti til vistvænna samgöngumáta en annað land innan borgarmarkanna. Þá stafar nokkur öryggisógn af flugvellinum í Vatnsmýri.
Áður þarf annar flugvöllur á suðvesturhorni landsins að taka við miðstöð innanlandsflugsins.
Ný staðsetning fyrir miðstöð innanlandsflugsins
Hagfræðistofnun HÍ mat árið 2015 samfélagslegan ábata af því að sameina miðstöð alþjóða- og innanlandsflugsins í Hvassahrauni og byggja Vatnsmýrina 82-123 milljarða króna. Ábati flugvallar í Hvassahrauni felst fyrst og fremst í uppbyggingu byggðar í Vatnsmýrinni og samrekstri innanlands og alþjóðaflugvallar.
Ýmsir kostir fylgja því að miðstöð innanlandsflugsins flyst til Keflavíkur og tengst alþjóðafluginu, sérstaklega ef fluglestin REY-KEF kemur. Þar má nefna styttri ferðatíma landsbyggð-útlönd og lægri ferðakostnað. Það kann því að bæta stöðu landsbyggðanna verulega.
Alþjóðaflugið þarf nýjan varaflugvöll ef Vatnsmýrarflugvöllur verður aflagður. Meðal hugmynda um staðsetningu fyrir varaflugvöll er Hvassahraun og á Suðurlandi.
Þetta og fleira þarf að fullkanna áður ákvarðanir verða teknar um framhaldið.
Í tengslum við endurbyggingu vallarins um síðustu aldamót gerði ríkið samninga við borgina um að finna kennslu- og æfingaflugi nýjan stað í nágrenni borgarinnar, sem þarf að standa við.
Móta þarf framtíðarstefnu í sjúkraflutningum fyrir landið sem kann að hafa áhrif á áform um framtíðar staðsetningu flugvallar sem þjónar öllum landsmönnum.
Fluglest REY-KEF
Raunhæfir möguleikar virðast vera á að hraðlest REY-KEF komi í einkaframkvæmd án umtalsverðra útgjalda fyrir skattgreiðendur.
Með hraðlestinni styttist ferðatími milli Keflavíkurflugvallar og höfuðborgarsvæðisins í 20 mínútur og ferðakostnaður stórnotenda lækkar verulega. Mengun minnkar, öryggi eykst og ýmiss óbeinn ávinningur fylgir svo sem samþætting vinnumarkaðar á SV horninu.
Samfélagslegur ábati er metinn 40-60 milljarðar króna. Allt þetta og fleira réttlætir að ríki og sveitarfélög á SV horninu styðji við verkefnið.
Unnið er jarðfræðirannsóknum vegna jarðgangna undir höfuðborgarsvæðið en útkoman skiptir miklu máli fyrir framhaldið.
Nýr varaflugvöllur
Reykjavíkurflugvöllur er varaflugvöllur fyrir alþjóðaflugið. Næstu varaflugvellir eru á Egilsstöðum, Akureyri og í Skotlandi og flugvélarnar þurfa aukið eldsneyti, sem minnkar aðra burðargetu og þar með tekjur flugfélaganna. Því er æskilegt að hafa varaflugvöll fyrir alþjóðaflugið ekki alltof langt frá Keflavík.
Um 2,2 milljónir ferðamanna fóru um Keflavíkurflugvöll árið 2017. Samkvæmt spám mun ferðamönnum fjölga áfram næstu áratugi. Æskilegt kann að vera að alþjóðaflugvellir vaxi upp á fleiri stöðum á landinu til að styrkja heildarmyndina.
Kanna þarf hvort bygging nýs flugvallar í Hvassahrauni sé heppilegasti kosturinn fyrir miðstöð innanlandsflugvöll og fyrir alþjóðaflugið.
Ofangreinda kosti og fleiri varðandi varaflugvöll fyrir alþjóðaflugið og nýjan valkost fyrir alþjóðaflugið þarf að skoða með faglegum hætti áður en ákvarðanir verða teknar.
Stóra myndin
Flutningur miðstöðvar innanlandsflugsins úr Vatnsmýrinni, uppbygging nýs alþjóðaflugvallar á SV horninu, hraðlest REY-KEF og fleira þarf að greina með faglegum hætti og í samhengi. Samkvæmt úttektum sem gerðar hafa verið er um þjóðhagslega hagkvæm mál að ræða en ekki er búið að skoða allar hliðar.
Við þurfum að kappkosta að landið sé samkeppnisfært við nágrannalöndin um ferðamenn og vel menntað fólk. Það er undirstaða batnandi lífskjara okkar í framtíðinni. Ekki veitir af á tímum alþjóðavæðingar því sífellt auðveldara er fyrir fólk að setjast að á öðrum stöðum í heiminum.