Lýðræðis-, menningar- og nýsköpunarstefna Pírata í Reykjavík
Allar stefnur vegna kosninga 2022:
Fundargerð félagsfundar:
Málsnúmer: | 4/2022 |
---|---|
Tillaga: | Lýðræðis-, menningar- og nýsköpunarstefna Pírata í Reykjavík |
Höfundur: | Gormur |
Í málaflokkum: | Stjórnsýsla og lýðræði |
Upphafstími: | 03/04/2022 12:00:54 |
Umræðum lýkur: | 13/04/2022 12:00:00 (0 minutes) |
Atkvæðagreiðsla hefst: | 08/04/2022 12:00:00 (0 minutes) |
Atkvæðagreiðslu lýkur: | 13/04/2022 12:00:00 (0 minutes) |
Atkvæði: | 24 |
Já: | 23 (95,83%) |
Nei: | 1 |
Niðurstaða: | Samþykkt |
Meirihlutaþröskuldur: | 50,00% |
Umræða
Þessu máli lauk fyrir nokkru síðan og er því krafist innskráningar til að sjá umræðu.
Leiðarljós
-Styrkjum lýðræðisleg vinnubrögð og lýðræðisþátttöku íbúa.
-Verum öflugt aðhaldsafl gegn spillingu og bregðumst við af ábyrgð þegar mál koma upp.
-Tökum upplýstar ákvarðanir sem byggja á vönduðum gögnum og vísindalegri nálgun.
Stuðlum að framsýnni nýsköpunarmenningu í takt við samfélags-, vistkerfis- og tæknibreytingar.
-Nýtum hugvitið, tæknina og stafræna umbreytingu til að bæta líf íbúa og nútímavæða þjónustu.
-Uppfærum þjónustu í takt við fjölbreyttar þarfir íbúa byggt á virku notendasamráði og notendaprófunum og pössum að engin sitji eftir.
-Setjum samfélagslega nýsköpun á oddinn, byggjum upp menningu, ferla og aðstöðu sem gera borgina aðgengilegri, kvikari og sveigjanlegri.
-Stöndum vörð um aðgengi að menningu og listum sem grunnstoð lýðræðisins.
-Hagnýtum gögn og gagnavinnslu til að bæta þjónustu, aðgengi að upplýsingum og skapa virði fyrir íbúa.
-Minnkum vesen, sóun og mengun og aukum aðgengi.
-Styðjum við hugmyndaauðgi, fjölbreytileika, nýsköpun og listsköpun.
Markmið
-Minnkum vesen, sóun og mengun með nútímavæddri, notendamiðaðri og stafrænni þjónustu.-
- Eflum stafræna þjónustu þar sem íbúar geta afgreitt mál sín sjálfir á einfaldan, hraðan og öruggan máta. Tryggjum að þjónustan sé aðgengileg og pössum að öll fái aðstoð við hæfi.
- Unnið verði áfram af fullum krafti að innleiðingu þjónustustefnu Reykjavíkurborgar á öllum sviðum starfsemi hennar og dótturfyrirtækja með virku notendasamráði og algildri hönnun.
- Innleiðum notendamiðaða þjónustuhugsun í samræmdri framlínuþjónustu þvert á borgina. Tryggjum að íbúanum mæti eitt viðmót í allri þjónustu.
- Tryggjum samfellu í þjónustu svo að fólk þurfi ekki alltaf að byrja upp á nýtt í hvert skipti sem það hefur samband við borgina.
- Fjárfestum í tæknilegum innviðum borgarinnar í takt við ströngustu alþjóðlegu kröfur og stuðlum þannig að áframhaldandi þjónustuumbreytingu og stafrænni vegferð.
- Áfram verði unnið að mikilvægum umbreytingarverkefnum eins og stafrænni innritun í leikskóla og stafrænum þjónustuferlum í skipulagsmálum.
- Prófum okkur í auknum mæli áfram með tæknilausnir sem geta einfaldað störfin, bætt þjónustu og lífsgæði og dregið úr mengun.
- Aðlögum stjórnsýsluna að þörfum borgarbúans, kennum ungu fólki á stjórnsýsluna og aukum færni eldra fólks í að sækja þjónustu á netinu.
-Stóreflum gagnsæi og upplýsingaaðgengi í stjórnsýslu og nýtum gögn til upplýstrar ákvarðanatöku.-
- Aukum gagnsæi og rekjanleika í ákvarðanatöku og ferlum.
- Verum leiðandi við birtingu opinna gagna og tryggjum að þau séu aðgengileg, auðfinnanleg og auðveld í notkun. Tryggjum skýrt eignarhald sveitarfélagsins á gögnum og afurðum.
- Styrkjum gagnainnviði enn frekar og þróum áfram vöruhús gagna og gagnavinnslustöð. Bætum við notkun fjölbreyttari gagna eins og frá hlutanetinu (e. Internet of things) og eflum getu borgarinnar til að vinna með fjölbreyttari gögn.
- Samþættum og bætum aðgengi að þeim gögnum sem er að finna í gagnagrunnum, svo sem mælaborði borgarbúa, Framkvæmdasjá, Borgarvefsjá og opnu bókhaldi.
- Þróum áfram og innleiðum að fullu Gagnsjá Reykjavíkur með yfirsýn yfir gögn borgarinnar og rekjanleika ákvarðana.
- Tryggjum aðgengi almennra íbúa, borgarfulltrúa og fjölmiðla að gögnum til að stuðla að virku aðhaldi og yfirsýn. Innleiðum skýra upplýsingastefnu sem kveður á um þetta í öllu stjórnkerfinu.
- Styðjum við frjálsan og opinn hugbúnað og innleiðum notkun véllæsilegra gagna í öllu stjórnkerfinu.
- Tryggjum örugga og vandaða meðferð gagna í samræmi við persónuverndarlög.
- Tryggjum að upplýsingar um fjármál sveitarfélagsins, dótturfyrirtækja og byggðasamlaga séu sem aðgengilegastar.
- Innleiðum nýja styrkjagátt með yfirliti yfir veitta styrki og forsendur styrkveitinga með stafrænu og aðgengilegu umsóknarferli.
- Aðgengi að fundargerðum dótturfyrirtækja verði tryggt og fundargögn birt á vefnum samhliða fundargerðum.
- Stundum nútímalega og vandaða skjalavörslu í öllu borgarkerfinu þar sem bæði skammtíma- og langtímavarðveisla skjala samræmist lögum og reglum með áherslu á aðgengi að gögnum.
- Viðhöfum öflugar varnir gegn tölvuárásum.
- Tryggjum gott upplýsingaaðgengi óháð tungumáli eða fötlun þar sem auðskilið tungumál er viðmiðið. Allar mikilvægar upplýsingar séu aðgengilegar á íslensku, ensku og pólsku eins og vefsíður, umsóknareyðublöð og aðrar lykilupplýsingar.
-Eflum lýðræðislega þátttöku íbúa og lýðræðisleg vinnubrögð stjórnsýslunnar.-
- Styrkjum þátttökulýðræði og aukum aðgengi íbúa að lýðræðisverkefnum. Eflum Hverfið mitt og íbúaráðin og aukum samráð við íbúa um mál sem þá varða.
- Þróum áfram og innleiðum sameinaða lýðræðisgátt, einföldum þjónustuna við íbúann sem og kerfin að baki og tryggjum gott og notendamiðað aðgengi.
- Innleiðum lýðræðisstefnu Reykjavíkur og mikilvægar aðgerðir hennar sem og hringrás lýðræðislegra vinnubragða í öllu stjórnkerfinu sem snýst um að hlusta, rýna, breyta og miðla.
- Tryggjum fjölbreyttar leiðir íbúa til áhrifa og pössum að innsendum hugmyndum og ábendingum sé svarað. Nýtum ábendingar markvisst til að bæta ferla og þjónustu.
- Innleiðum markviss og gagnsæ vinnubrögð við samráð innan ráða, nefnda, stjórnsýslu, dótturfyrirtækja og byggðasamlaga.
- Lengjum boðunarfresti ráða og nefnda svo fulltrúar hafi fullnægjandi tíma til undirbúnings.
- Nýtum tæknina til að bæta upplýsingamiðlun um skipulags- og stjórnsýslumál og gerum tilraunir með upptökur kynninga í ráðum sem verði gerðar aðgengilegar almenningi og íbúaráðum ásamt öðrum fundargögnum.
- Gerum skipulagsgögn aðgengilegri svo að fólk þurfi ekki að vera sérfræðingar í skipulagsmálum til að taka upplýstar ákvarðanir. Látum kynningarskjöl ávallt fylgja fundargögnum.
- Eflum lýðræðislega aðkomu kjörinna fulltrúa og íbúa að byggðasamlögum og eflum samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um sameiginlegan rekstur og úrlausnarefni.
- Beitum okkur fyrir lækkun kosningaaldurs við sveitarstjórnarkosningar niður í 16 ár og útvíkkun kosningaréttar fyrir innflytjendur.
-Tryggjum faglegheit og jafnræði í vinnubrögðum og veitum öflugt aðhald gegn spillingu.-
- Tryggjum að boðið sé upp á skilvirka uppljóstrunargátt þar sem gætt er að nafnleynd og þar sem málum er fylgt markvisst eftir.
- Opin og gagnsæ ferli séu viðhöfð í kringum sölu á auðlindum sveitarfélagsins og eigna almennings, svo sem við útdeilingu lóða eða eignasölu.
- Viðhöfum gagnsæja og faglega ferla og tryggjum óháðar og ópólitískar ráðningar í störf og embætti. Tryggjum óhæði í verkferlum sem og ásýnd.
- Þjónusta umboðsmanns borgarbúa og ráðgjafaþjónusta fyrir íbúa sé öflug og aðgengileg almenningi. Styrkjum og skýrum þær leiðir sem íbúar hafa til að leita stuðnings og réttar síns innan stjórnkerfisins í gegnum umboðsmann, sviðin sjálf og þar fyrir utan.
- Auglýsum störf og endurskoðum frávik frá þeirri meginreglu með því að setja skýrari skorður um meðal annars skammtímaráðningar.
- Þrýstum á að sett verði lög sem geri hagsmunaskráningu kjörinna fulltrúa sveitarfélaga að kröfu.
-Stuðlum að aukinni nýsköpun og tryggjum jafnræði, gagnsæi og sjálfbærni í innkaupa- og útboðsferlum.-
- Stuðlum að aðgengilegri heildaryfirsýn yfir öll innkaup og útboð.
- Komum á auknu samstarfi um innkaupa- og útboðsferla og samræmdum miðlægum innkaupum.
- Leggjum áherslu á aðgengi og sveigjanleika með aukinni notkun innkaupa- og útboðsferla sem ýta undir nýsköpun og þróun, meðal annars með útboðum á áskorunum og virku samtali í stað fyrirfram skilgreindra lausna.
- Prófum okkur áfram og gefum okkur svigrúm til þess að prófa lausnir áður en við læsum okkur inni í stórum innkaupum.
- Stuðlum að fjölbreytni meðal þátttakenda og sem jöfnustu aðgengi meðal mismunandi birgja í innkaupa- og útboðsferlum og hugmyndasamkeppnum, þannig að tryggt sé að þátttaka í opinberum innkaupum verði á færi minni aðila eins og sprotafyrirtækja.
- Í fjárhagsáætlun verði tilgreint að ákveðum hluti af fjárheimildum starfseininga verði varið í umbóta- og nýsköpunarverkefni.
-Sköpum umbóta- og nýsköpunarmenningu innan starfsstaða til hagsbóta fyrir íbúa.-
- Höldum áfram að kúlturhakka borgina, eflum nýsköpunarmenningu þvert á svið og þéttum samstarf út á við. Stuðlum að því að menningin endurspeglist í jákvæðu viðmóti gagnvart nýjum hugmyndum og skapandi lausnum. Innleiðing nýjunga og tækni nær ekki settu markmiði nema að mannauður og menning þróist með.
- Hvetjum og veitum svigrúm til nýsköpunar og tilrauna innan starfseininga með fjölbreyttum leiðum, t.d. með aðgengi að fjármagni fyrir skapandi lausnir, nýsköpunarfræðslu til að efla færni og hugarfar, skapandi samvinnurýmum og að ákveðinn tími sé tileinkaður nýsköpun.
- Vinnum gegn valdboðshugsun þannig að raddir allra heyrist og hugmyndir þeirra komist í ferli, til að kynda undir lýðræðislegri og skapandi hugsun.
- Stuðlum að virkri umbótamenningu innan stjórnsýslunnar, til dæmis með tilraunum á starfsstöðvum með nafnlausa hugmyndakassa og úrvinnslu innan eininga.
- Sköpum vettvang þar sem starfsfólk og íbúar byggja ofan á hugmyndir hvers annars með upplýsingum, rannsóknum og lausnum í tengingu við samanteknar samfélagslegar áskoranir borgarinnar og gerum það aðgengilegt sem verkefnabanka innan háskóla- og frumkvöðlasamfélagsins.
-Sköpum öfluga og samkeppnishæfa háskólaborg og styðjum við lifandi þekkingar- og nýsköpunarsamfélag með fjölbreyttum atvinnutækifærum innan borgarmarkanna.-
- Sköpum alþjóðlega samkeppnishæft háskólasvæði í framúrskarandi nútímaborg með vistvænum samgöngum, fjölbreyttri menningu, listum, og þjónustu til að laða að okkur alþjóðlega þekkingu.
- Leggjum áherslu á aðlaðandi nýsköpunarumhverfi fyrir frumkvöðla og gerum vistkerfi nýsköpunar í Reykjavík sérstaklega aðgengilegt fyrir konur og aðra hópa sem hallar á.
- Eflum og þróum innviði fyrir klasasamvinnu þvert á atvinnulífið með sérstaka áherslu á samfélagsklasa í Vatnsmýri sem alþjóðlega miðstöð þekkingar, rannsókna og kennslu á sviði samfélagslegrar og grænnar nýsköpunar.
- Leggjum grunn að skapandi háskólasamfélagi með aðgengi fyrir tilraunir nemenda, rannsakenda, frumkvöðla, opinberra stofnana og atvinnulífs, meðal annars með uppbyggingu framsýns tilraunasvæðis.
- Tryggjum stuðning við sprotafyrirtæki og samfélagsleg verkefni á öllum stigum með því að styðja við nýsköpunarhraðla og lausnamót á sem flestum sviðum ásamt stuðningi við ráðstefnur og viðburði innan nýsköpunarvistkerfisins.
- Stuðlum að tengslamyndun og þekkingayfirfærslu milli frumkvöðla, mentora og fjárfesta með aðgengi að vaxtarfjármagni.
- Förum í greiningarvinnu á stofnun fjárfestingarsjóðs á vegum borgarinnar sem hefði það að markmiði að fjárfesta í opinberri- og samfélagslegri nýsköpun á framkvæmda- og vaxtarstigi.
- Styðjum uppbyggingu frumkvöðlasetra og skapandi samvinnurýma í úthverfum borgarinnar í tengingu við þjónustukjarna.
- Gerumst fýsileg staðsetning fyrir búsetu þeirra sem stunda fjarvinnu.
- Eflum innlent og alþjóðlegt samstarf um nýsköpun, styrkjaumsóknir og rannsóknir.
- Aukum samstarf við Nýsköpunarsjóð námsmanna um framboð af sumarstörfum út frá áskorunum og lærdómstækifærum sem sveitarfélögin standa frammi fyrir.
- Eflum deili-, og hringrásarhagkerfið í víðum skilningi. Styðjum við fjölbreytta leiguþjónustu með aðgangi að tækjum og tólum sem stuðli að endurnýtingu, og hvetji til nýsköpunar og uppgötvunar.
- Stofnum vettvang til eflingar vistkerfis nýsköpunar með þátttöku helstu hagsmunaaðila eins og ríkis, sveitarfélaga, fjárfesta, menntakerfisins, verkalýðsfélaga, atvinnulífs og frumkvöðla.
- Stundum virkt og reglulegt samráð við nýsköpunarsamfélagið til að stuðla að viðeigandi stuðningi í takt við þarfir.
- Eflum menntakerfið sem stökkpall frjórrar hugmyndaauðgi, sköpunar og gagnrýnnar hugsunar-
- Tryggjum samfellda fræðslu um og þátttöku í nýsköpun á öllum stigum menntakerfisins með áherslu á hagnýtingu grunnrannsókna og virka samsköpun milli opinberra stofnanna og atvinnulífs.
- Eflum deilihagkerfis-, og nýsköpunarþróunarsetur (til dæmis FabLab) í tengingu við skóla, félagsmiðstöðvar og bókasöfn.
- Hugað verði að aukinni lýðræðis- og jafnréttisfræðslu og kennslu í gagnrýninni og skapandi hugsun í stað utanbókarlærdóms. Hlúð verði að samfélags-, hugvísinda- og skapandi greinum og vægi þeirrar menntunar fyrir fjórðu iðnbyltinguna.
- Hvetjum til símenntunar kennara og annars starfsfólks í takt við tækni- og samfélagsbreytingar.
-Sköpum frelsi og jöfn tækifæri til að njóta og skapa menningu og list-
- Styðjum við jafnt aðgengi að fjölbreyttri menningu og list fyrir öll óháð efnahag, aldri, uppruna eða stöðu að öðru leyti og stöndum vörð um öfluga jafnréttisstefnu og inngildingu í menningarmálum.
- Hlúum að grasrót í menningarstarfi.
- Eflum sýnilega sem ósýnilega innviði menningar og lista.
- Stöndum vörð um okkar menningararf og alla hringrás safnaflórunnar frá þróun sýninga yfir í góðar geymslur, rakamæla og gott utanumhald eins og nauðsyn krefst.
- Stöndum með frjálsu upplýsinga-, hugmynda- og sköpunarflæði þvert á samfélög og landamæri.
- Eflum fjölmenningarstarf og hlúum að menningu innflytjenda svo hún auðgi og frjóvgi þá menningu sem fyrir er.
- Styrkjum aðgang að menningu með aðstoð tækninnar.
- Tryggjum gagnsæi í öllum styrkjaferlum á menningarsviði.
- Stöndum gegn allri ritskoðun á menningu.
- Stöndum vörð um rétt listafólks til að fá greitt fyrir vinnu sína.
Við samþykkt þessarar tillögu falla úr gildi eftirfarandi stefnur:
Stefnur frá 2018 sem fjalla um lýðræðis- og nýsköpunarmál
Kjarnastefna stjórnsýslu og lýðræðis: https://x.piratar.is/polity/102/issue/358/