Samþykkt: Velferðarmál
Með tilliti til:
Greinar §2 í grunnstefnu Pírata um borgararéttindi
Skýrslunnar Grunnþjónusta á sviði félagsþjónustu sveitarfélaga (http://www.samband.is/media/felagsthjonusta/grunnthjonusta.pdf)
álykta Píratar í Hafnarfirði að:
Tryggja skuli að Hafnarfjarðarbær uppfylli grunnþjónustu- og framfærsluskyldur sínar gagnvart íbúum bæjarins.
Embætti umboðsmanns bæjarbúa verði stofnað og hlutverk þess verði skilgreint þannig að bæjarbúar geti leitað þangað með beiðnir um úrbætur í málum og málaflokkum.
Gerð verði úttekt á því félagsstarfi sem í boði er í bænum til að samræma upplýsingar og þjónustu og efla hana til að koma í veg fyrir félagslega einangrun fólks. Sérstaklega verði hugað að aðgerðum til að draga úr einangrun fatlaðra, hælisleitenda, aldraðra og öryrkja.
Gerð verði úttekt á úrræðum fyrir börn og ungmenni í vanda og fjölskyldur þeirra til að samræma upplýsingar og þjónustu og efla stuðning. Aðkoma aðstandenda að mótun úrræða skuli efld.
Að tryggja skuli að innheimta skulda einstaklinga við Hafnarfjarðarbæ sé mannúðleg og valkostir til endurgreiðslu fjölbreyttir.
Þeir sem eigi hvergi höfði að að halla njóti þeirra mannréttinda að fá þak yfir höfuð. Stefnt verði að því að allir sem fá skráninguna 'óstaðsettur í hús' fái til dæmis smáhýsi til afnota. Allir eigi rétt á þessari þjónustu; hún verði ekki háð kvöðum. Nágrannasveitarfélög verði virkjuð til samstarfs í þessu verkefni.
Hafnarfjarðarbær taki vel á móti nýjum íbúum með því að kynna þeim þá þjónustu og aðstöðu sem er í boði, sem og réttindi og skyldur.
Nauðsynlegt sé að huga vel að forvörnum á ýmsum sviðum þar sem sparnaður í þeim leiðir oft til kostnaðar síðar meir. Séð skuli til þess að forvarnaraðferðir séu ávallt fræðilega unnar, sannreyndar og árangursmetnar reglubundið. Áhersla skal lögð á fræðslu en ekki hræðslu.
Samhliða forvörnum og meðferðarúrræðum vegna fíknivanda skuli stutt við skaðaminnkandi nálganir sem draga úr þeim heilsutengdu og félagslegu vandamálum sem geta fylgt fíkn.
Að allir hafi rétt til að koma að ákvarðanatöku um málefni sem varða þá.
Tilheyrandi mál: | Velferðarmál |
---|
Útgáfur
# | Staða | Höfundur | Lýsing |
---|---|---|---|
1 | Samþykkt | brynjarg |