Samþykkt: Stuðningur samþyktar ÍBH um grunnskóla
Stuðningur við ályktun íbúafundar á Hvanneyri
Með tilvísun til grunnstefnu Pírata...
http://www.piratar.is/stefnumal/grunnstefna/
http://www.piratar.is/stefnumal/piratakodinn/
Með hliðsjón af…
Grunnstefnu Pírata á sveitastjórnarstigi
http://www.piratar.is/sveitarstjorn/stefnumal/stjornsysla-a-sveitarstjornarstigi/
Álykta Píratar í Borgarbyggð að…
- Samhljóða stuðning við ályktun Íbúasamtök Hvanneyrar sem samþykktar voru á íbúafundi sem sveitarstjórn Borgarbyggðar hélt á Hvanneyri þann 2. september síðastliðinn. Ályktunin er sem segir:
"Fundarmenn fara fram á að sveitarstjórn dragi ákvörðun sína um lokun grunnskóladeildar GBF á Hvanneyri til baka. Ákvörðunin byggir á úreltum og röngum gögnum og hefur sveitarstjórn ekki tekist að sanna með óyggjandi hætti að aðgerðin sé nauðsynleg. Að auki er ákvörðunin tekin án samráðs og í andstöðu við íbúa. Fundarmenn krefjast þess að sveitarstjórn vinni eftir aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022 og að skólastefna verði mótuð áður en ráðist verði í svo íþyngjandi niðurskurð."
- Píratar í Borgarbyggð óski eftir fundi við Íbúasamtök Hvanneyrar varðandi frekari upplýsingar og leiðir til lausnar máls grunnskóladeildar GBF á Hvanneyri sem byggðist á vandaðri stjórnsýslu.
Sem byggir á grunnstefnu Pírata, greinar: 4.2, 4.3, 4.4, 4.5, 6.1, 6.2, 6.3 og ályktun Pírata um stjórnsýslu á sveitastjórnastigi.
Samþykkt einróma á
Stofnfundi Pírata í Borgarbyggð 4. október 2015
Tilheyrandi mál: | Stuðningur samþyktar ÍBH um grunnskóla |
---|
Útgáfur
# | Staða | Höfundur | Lýsing |
---|---|---|---|
1 | Samþykkt | agust76 |