Grunnskóli
Málsnúmer: | 3/2015 |
---|---|
Tillaga: | Grunnskóli |
Höfundur: | agust76 |
Í málaflokkum: | Menntamál |
Upphafstími: | 15/11/2015 23:32:42 |
Atkvæðagreiðsla hefst: | 24/11/2015 23:32:42 (0 mínútur) |
Atkvæðagreiðslu lýkur: | 01/12/2015 23:32:42 (0 mínútur) |
Atkvæði: | 2 |
Já: | 1 (50.00%) |
Nei: | 1 |
Niðurstaða: | Hafnað |
Meirihlutaþröskuldur: | 50.00% |
Umræða
Þessu máli lauk fyrir nokkru síðan og er því krafist innskráningar til að sjá umræðu.
Stefna Pírata í Borgarbyggð: Grunnskóli
Með tilsjón af stefnu Pírata:
Menntamál: https://x.piratar.is/issue/73/
Lögbundin kynfræðsla: https://x.piratar.is/issue/47/
Með tilliti til:
Grunnstefnu Pírata, Píratakóðans og Stjórnsýsla á sveitasjórnarstigi
Með sérstakri áhersu á:
Öll börn eiga rétt á námi í heimabyggð.
Menntun skuli vera án kostnaðar, pappírs eða annarra gjalda sem sveitastjórn innheimtir.
Grunnskóli skal starfræktur í öllum hverfum Borgarbyggðar fyrir 1. til 5. bekk og skal hefja viðræður við ríkið um auka fjármagn til þjónustusveitafélagsins Borgarbyggð.
Píratar munu í samstarfi við íbúa í samræmi við aðalnámskrá grunnskólabarna leggja til að þessi grunnþjónusta samfélagsins verði varinn í framtíðinni af niðurskurði sveitastjórnar. Ef lagabreytinga er þörf, munu Píratar í Borgarbyggð óska eftir við Landsfélagið að breytingatillaga verði sett í umræðu, lögð fyrir á félagsfund og um hana kosið í kosningakerfi Landsfélagsins.
Lokun skóla getur einungis verið framkvæmd með meirihlutakostningu íbúa hverfa skólanna.
Rökstuðningur:
Það er mat okkar Pírata í Borgarbyggð að það séu grundvallar mannréttindi að ung börn fái menntun í sinni heimabyggð burt séð frá kostnaði. Lokun skóla í hverfum Borgarbyggðar hefur neikvæð framtíðaráhrif svo sem á innkomu sveitafélagsins í formi fasteignaggjalda, útsvars og framtíðar uppbyggingu hverfa Borgarbyggðar. Standa þarf vörð um þessa þjónustu.