Stefna um hátækniiðnað
Málsnúmer: | 6/2015 |
---|---|
Tillaga: | Stefna um hátækniiðnað |
Höfundur: | agust76 |
Í málaflokkum: | Atvinnumál |
Upphafstími: | 10/12/2015 12:23:58 |
Atkvæðagreiðslu lýkur: | 16/12/2015 12:23:58 (0 mínútur) |
Atkvæði: | 3 (1 sitja hjá) |
Já: | 3 (100.00%) |
Nei: | 0 |
Niðurstaða: | Samþykkt |
Meirihlutaþröskuldur: | 50.00% |
Umræða
Þessu máli lauk fyrir nokkru síðan og er því krafist innskráningar til að sjá umræðu.
Stefna Pírata í Borgarbyggð: Hátækni Iðnaður
Með vísun í:
Regugerð um gatnagerðagjöld: http://www.reglugerd.is/reglugerdir/eftir-raduneytum/felagsmalaraduneyti/nr/1430
Með tilliti til:
Grunnstefnu Pírata, Píratakóðans og Stjórnsýsla á sveitastjórnarstigi.
Álykta Píratar í Borgarbyggð að...
Bætt verður við í aðalskipulag Borgarbyggðar hátæknisvæðum (hátæknihverfum) sem ætluð er blandaðri byggð fyrirtækja í hátækni og fyrirtæki sem þjónusta slík félög meira en 50% af rekstrarinnkomu þeirra.
Sveitastjórn skilgreinir hvað fellst undir hátækni iðnað.
Undanþága verður veitt þeim félögum frá reglugerð um gattnagerðagjöld í samvinnu við viðeigandi ráðuneyti ef slíks er krafist. Undanþáan skal ná til þeirra greina er fjalla um gjöld og greiðslur vegna gatnagerðagjalda en ekki fasteignagjalda.
Fasteignagjöld munu vera óbreytt enda ein af tekjustofnum sveitafélagsins.
Hægt verði í sumum tilfellum að gefa afslátt af fasteignargjöldum ef fyrirtækið óskar eftir því sérstaklega, þó ekki lengur en í 3 ár frá upphafi rekstrar.
Sérstakur starfsmaður Borgarbyggðar verður ráðinn til að ræða við hin ýmsu fyrirtæki og ráðleggja sveitastjórn hverju sinni um hvað væri hægt að gera betur, ásamt því að bjóða fyrirtækjum til Borgarbyggðar til að kynna þeim landkosti og þjónustu bæjarfélagsins. Kynningarfulltrúi Borgarbyggðar.
Rökstuðningur:
Borgarbyggð hefur að mestu frá upphafi verið hrein byggð með lítin sem engan þungan iðnað. Því viljum við halda og skapa umhverfi fyrir fyrirtæki sem sækjast eftir ódýrum lóðum íviljanir vegna gatnagerða með þeim úrræðum sem Sveitastjórn hefur uppá að bjóða hverju sinni. Ljóst er að tekjumissir gatnagerðagjalda er lítill miðað við útsvar, fjölgun íbúa, eflingu háskóla byggðarinnar og fjölbreytileika starfa.
Samþykkt með öllum greiddum atkvæðum á félagsfundi 1. desember 2015 og sett í umræðuferli á kosningakerfi Pírata í Borgarbyggð.