Samþykkt: Stefna um aukna dreifstýringu
Með tilliti til:
- greinar 6.1 í grunnstefnu Pírata um réttinn til sjálfsákvörðunar
- greinar 6.3 í grunnstefnu Pírata um að draga úr miðstýringu
og hliðsjón af:
- slakri reynslu jaðarsvæða af sameiningu sveitarfélaga og takmörkuðum árangri þeirra við að ná yfirlýstum markmiðum
- yfirlýstum vilja ríkisvaldsins til að ganga enn lengra í sameiningu, meðal annars með sameiningu allra Vestfjarða í eitt sveitarfélag
- takmörkuðum möguleikum sveitarfélaga til að tryggja rekstrargrundvöll sinn
- þeirri staðreynd að ríkisvaldið var lagt á sveitarfélögin með hervaldi
- tilhneigingu íslenska ríkisins frá tilkomu heimastjórnar að draga úr vægi stjórnvaldsstiga annarra en landsstjórnarinnar
álykta Píratar á Vestfjörðum að stefnt skuli að því að:
- Samræma skuli þau landsvæði sem svæðisskiptar ríkisstofnanir styðjist við. Ráðlagt verði að stuðst sé við þau svæði sem skilgreina landshlutasamtök sveitarfélaga.
- Settar skuli á fót, með tilfærslu verkefna frá ríki og sveitarfélögum, héraðsstjórnir. Skal héraðsstjórnum fært sjálfstætt fjárveitingarvald.
- Innan héraðs verði heimilt að afturkalla sameiningar sveitarfélaga.
- Verði vinna að þessum markmiðum ekki hafin fyrir árslok 2017 skuli Vestfirðir segja sig úr lögum við lýðveldið Ísland.
Tillaga þessi hefur verið samþykkt með atkvæðagreiðslu.
Tilheyrandi mál: | Stefna um aukna dreifstýringu |
---|
Útgáfur
# | Staða | Höfundur | Lýsing |
---|---|---|---|
1 | Samþykkt | odin |