Samþykkt: Þunn fjármögnun
Með tilvísun til eftirfarandi greinar í grunnstefnu Pírata
4.6 Píratar telja að allir hafi óskoraðan rétt til aðkomu að ákvörðunum sem varða eigin málefni, og rétt til vitneskju um það hvernig slíkar ákvarðanir hafi verið teknar.
6.1 Píratar telja að allir hafi rétt til að koma að ákvarðanatöku um málefni sem varða þá.
Með hliðsjón af fyrri ályktun Pírata
Lið 5 í stefnu Pírata um ríkissjóð og skattheimtu (https://x.piratar.is/polity/1/document/30/)
> Við alla álagningu skatta skal áhersla lögð á að skatturinn sé sýnilegur og skiljanlegur greiðanda.
Álykta Píratar
- Að lögfesta skuli takmörk á þær vaxtagreiðslur sem fyrirtæki geta dregið frá skattstofni við 30% af hagnaði fyrir fjármagnsliði, skatta, afskriftir fastafjármuna og niðurfærslur (EBITDA). Þannig verði 70% af EBITDA ávallt skattstofn, óháð vaxtagreiðslum fyrirtækisins.
- Að leitað verði endurskoðunar fjárfestingarsamninga við þau fyrirtæki sem með slíkum samningum hafa undanþegið sig eðlilegum tekjuskattsgreiðslum. Í endurskoðuðum samningum verði eðliegar skatttekjur tryggðar og einnig séð til þess að uppsafnað tap fyrri ára verði ekki notað til að koma í veg fyrir eðlilegar tekjuskattsgreiðslur fyrirtækjanna framvegis.
- Að takist ekki samningar skv. 2. gr. stefnu þessarar innan 6 mánaða frá upphafi viðræðna verði lagður á orkuskattur sem skili þjóðfélaginu sömu eða hærri upphæðum og ef fyrirtækin væru ekki undanþegin almennum reglum um tekjuskatt sbr. 1. gr. þessarar stefnu."
Greinargerð
Almennt
Þunn fjármögnun (e. thin capitalisation) er þegar fyrirtæki er fjármagnað að mestu eða öllu leyti með lánsfé. Eigið fé fyrirtækisins er þá lítið eða ekkert. Lánveitendur eru gjarnan, en ekki alltaf, tengdir aðilar, jafnvel fyrirtæki sem tilheyra sömu samstæðu. Þetta fyrirkomulag á fjármögnun er til þess ætlað að ekki myndist tekjuskattsstofn þar sem allur hagnaður fer fer í vaxtagreiðslur á lánum. Þetta fyrirkomulag fjármögnunar þykir með öllu óeðlilegt, enda er hér um að ræða skattaundanskot sem valda því að fyrirtæki sem þetta stunda greiða ekki eðlilega til samfélagsins sem þau starfa í, heldur færa rekstrarhagnað í skattaskjól þar sem skattbyrði en lítil sem engin. Skattaundanskotum með þunnri fjármögnun er víðast hvar hamlað í iðnvæddum löndum og er stefnu þessari ætlað að tjá vilja Pírata til að festa slíkar hömlur í lög á Íslandi. Píratar álíta tilvalið að leggja hið vandaða þýska regluverk um þunna fja?mögnun til grundvallar eftir aðlögun að íslenskum hagstærðum og aðstæðum almennt.
Bent skal á að Alþjóða Gjaldeyrissjóðurinn lagði til við íslensk stjórnvöld í kjölfar hrunsins að tekið yrði fyrir þunna fjármögnun, en af einhverjum ástæðum sáu stjórnvöld ekki ástæðu til að fara að þeirri ráðleggingu, og hefur ríkissjóður orðið af miklum tekjum vegna þess eða milli 3 og 5 milljarða á ári. Evrópusambandið hefur skorið upp herör gagnvart þunnri fjármögnun, sem er reyndar bara eitt af mörgum tólum sem alþjóðafyrirtæki hafa til að hagræða skattgreiðslum. Nokkur mál hafa komið upp undanfarin ár þar sem fyrirtæki sbr. t.d.,Google og Cisco Systems, hafa verið harðlega gagnrýnd fyrir að flytja eignir og tekjur milli skattsvæða til að lágmarka skattgreiðslur til þeirra landa sem þau í raun starfa í. Sjá http://www.taxand.com/…/deductibility-interest-expenses-%E2…
Einstakar greinar
- gr. Í meginatriðum eru notaðar tvær aðferðir til að stöðva skattaundanskot með þunnri fjármögnun. Annars vegar að takmarka þá vexti sem draga má frá tekjuskattstofni í skattalegu uppgjöri en hins vegar reglur um lágmarkshlutfall eigin fjár félaga. Seinna úrræðið er töluvert flóknara i framkvæmd þar sem auðveldara er að halda áfram að greiða háa vexti til systurfélaga óháð eiginfjármögnun. Hér er því sú stefna tekin að takmörkun verði á vaxtagreiðslum sem draga má frá skattstofni.
- gr. Þessi grein á fyrst og fremst við tvö fyrirtæki sem reka álver á Íslandi, þ.e.a.s. Alcoa og Norðurál. Í fjárfestingarsamningum milli íslenskra stjórnvalda og þessara fyrirtækja eru fyrirtækin í raun undanþegin tekjuskattgreiðslum á Íslandi því þar er m.a. kveðið á um að ekki megi takmarka vaxtagreiðslur til útlanda. Þessi ákvæði og önnur ákvæði í fjárfestingarsamningum og íslenskum lögum, hafa fyrrnefnd fyrirtæki notað svo rækilega að ekki hefur borist króna í eðilega tekjuskatta frá þessum risastóru fyrirtækjum meðan móðurfyrirtækin erlendis gorta af því í útgefnu efni hversu gróðinn af rekstri íslensku álveranna er mikill. Um þetta þarf að semja að nýju.
- gr. Til að hvetja stóriðjufyrirtækin til samninga má sem hægast benda þeim á að hægt er að innheimta skatta af öðru en þeirra eigin rekstri þannig að eðlilegar skatttekjur verði af starfsemi þessari. Þar sem orkunotkun stóriðjufyrirtækjanna er um 80% af þeirri orku sem notuð er á Íslandi og leggja má á mjög hóflegan, almennan orkuskatt sem enginn finnur fyrir nema stóriðjan ef til samningstregðu af hálfu stóriðjunnar kemur.
Tilheyrandi mál: | Þunn fjármögnun |
---|
Útgáfur
# | Staða | Höfundur | Lýsing |
---|---|---|---|
1 | Samþykkt | bjornlevi |