Samþykkt: 6 Landsbankinn í ríkiseigu
6 LANDSBANKINN Í RÍKISEIGU
Með tilvísun í grunnstefnu Pírata
1.1 Píratar leggja áherslu á gagnrýna hugsun og vel upplýstar ákvarðanir.
Og með hliðsjón af Stefnu Pírata um Ríkissjóð og skattheimtu, gr. 5.:
Við alla álagningu skatta skal áhersla lögð á að skatturinn sé sýnilegur og skiljanlegur greiðanda.
Píratar álykta að til að eftifarandi sé stefna Pírata:
Ríkissjóður eigi Landsbankann og taki arð af þeim rekstri í samræmi við rekstrarafkomu hans.
Tillaga þessi hefur verið samþykkt með atkvæðagreiðslu.
Tilheyrandi mál: | Landsbankinn í ríkiseigu |
---|
Útgáfur
# | Staða | Höfundur | Lýsing |
---|---|---|---|
1 | Samþykkt | mordur | GREINARGERÐ Stefnt skal að óbreyttu eignarhaldi ríkisins á Landsbankanum. Eignarhaldið verði endurskoðað reglulega í ljósi samkeppnisstöðu á markaði. Það er í sjálfu sér ekki markmið að ríkissjóður eigi banka en miðað við sögu einkavæðingar hér á landi er hreinlega um varkárnissjónarmið að ræða. Öflug og fagleg stjórn og framkvæmdastjórn verði yfir bankanum. Bankinn skal vera tilfyrirmyndar varðandi gagnsæi í starfsemi. Gera má ráð fyrir 7-10 milljörðum árlega í arð til ríkissjóðs úr starfseminni. Áætlaðar árlegar tekjur ríkissjóðs af þessu fyrirkomulagi eru 10 milljarðar. |