Samþykkt: Erindisbréf Pírata til umboðsmanna vegna stjórnarmyndunar 2016
Erindisbréf þetta er út gefið samkvæmt 10. kafla laga Pírata á Íslandi
og veitir þeim er bréfið nefnir umboð flokksins til umræðna við
forsvarsmenn annarra stjórnmálaflokka um myndun ríkisstjórnar og
skilyrði Pírata fyrir slíku samstarfi. Erindisbréfið gildir til loka
dags 31. desember 2016 eða þar til ný ríkisstjórn hefur tekið til
starfa, hvort sem fyrr verður.
Umboðið gildir um viðræður, formlegar og óformlegar, bæði fyrir og eftir
næstu Alþingiskosningar og gert er ráð fyrir að Píratar byggi mögulegt
ríkisstjórnarsamstarf eftir kosningar á niðurstöðum viðræðnanna.
Umboðsmenn hafa frjálsar hendur um val viðmælenda sinna hjá öðrum
stjórnmálaflokkum. Þeim er heimilt að semja um skilyrði fyrir
stjórnarsamstarfi við aðra flokka og stilla upp drögum að
stjórnarsamkomulagi. Umboðsmenn skulu þó ávallt hafa hafa samþykkta
kosningastefnu Pírata til grundvallar og þann fyrirvara gagnvart
viðsemjendum að gildi samkomulags sé háð stuðningi þingflokks og hjóti
aðeins gildi við staðfestingu grasrótar flokksins í atkvæðagreiðslu.
Umboðsmenn skulu fyrir kosningar gefa þingflokki og þremur efstu
frambjóðendum flokksins úr hverju kjördæmi skýrslu, munnlega eða
skriflega, einu sinni vikulega að lágmarki. Eftir kosningar skal samráð
við þingflokk vera daglega til að þingflokkur sé ávallt upplýstur um
gang viðræðna. Með hliðsjón af af þeirri staðreynd að oft eru
stjórnarmyndunarviðræður mjög bundnar trúnaði skulu skýrslur umboðsmanna
og staða umræðna aðeins birt almennum flokksmönnum ef þingflokkur metur
að það sé rétt, nauðsynlegt og í samræmi við skuldbindingar umboðsmanna
um trúnað.
Þau er umboð hljóta samkvæmt þessu bréfi eru:
- Smári McCarthy
- Einar Brynjólfsson
- Birgitta Jónsdóttir
Erindsbréf þetta er gefið út á félagsfundi þann 16. september 2016 og
tekur gildi að fenginni staðfestingu, grasrótar, framkvæmdaráðs og
þingflokks samkvæmt lögum Pírata.
Tilheyrandi mál: | Erindisbréf Pírata til umboðsmanna vegna stjórnarmyndunar 2016 |
---|
Útgáfur
# | Staða | Höfundur | Lýsing |
---|---|---|---|
1 | Samþykkt | Beltiras | Samþykkt af félagsfundi 16. september |