Tillaga: Endurskoðun höfundaréttar
Með tilvísun til
- 1.1 Píratar leggja áherslu á gagnrýna hugsun og vel upplýstar ákvarðanir.
- 2.1 Píratar beita sér fyrir eflingu og verndun borgararéttinda.
- 4.3 Upplýsingar eiga að vera aðgengilegar almenningi.
- 5.1 Takmörkun á frelsi fólks til að safna og miðla upplýsingum er óásættanleg, nema til verndar borgararéttindum einstaklinga.
og með hliðsjón af
- Norsku skýrslunni, ítarlegri rannsókn á áhrifum stafrænnar væðingar á tónlistar iðnaðinnum í Noregi frá 1999 til 2009 - http://www.scribd.com/doc/37406039/Thesis-Bjerkoe-Sorbo
- og Hargrave review, skýrslu sem breska ríkisstjórnin lét taka saman http://www.ipo.gov.uk/ipreview-finalreport.pdf
álykta Píratar eftirfarandi:
- Endurskoðun á sæmdarrétti.
- Frjáls dreifing á efni sem er ekki í fjárhagsskyni.
- 20 ár á efni sem er í fjárhagsskyni.
- Skráning eftir 5 ár til að nýta 20 ára rétt í fjárhagsskyni að fullu.
- Betri skilgreining á sanngjarnri notkun.
- Leyfa aflæsingu á afritunarvörn. Greinilegt skal vera fyrir kaupanda að vara sé læst með afritunarvörn
- Ríkið skuli ekki vera með höfundarrétt.
- Ríkið skal móta sér stefnu um að sérsniðinn hugbúnaður og hugbúnaður sem er framleiddur af ríkinu sjálfu, skuli vera að jafnaði opinn.
Enn er þetta einungis tillaga sem hefur ekki verið samþykkt með atkvæðagreiðslu.