Tillaga: Menntamál
Með tilvísun í
Grunnstefnu Pírata:
> 1.1 Píratar leggja áherslu á gagnrýna hugsun og vel upplýstar ákvarðanir.
> 1.4 Réttur einstaklinga til að leita þess að verða upplýstir skal aldrei skertur.
> 2.4 Píratar telja að borgararéttindi tilheyri einstaklingum, og að réttur hvers og eins sé jafn sterkur.
> 4.2 Píratar telja gegnsæi eiga mikilvægan þátt í að almenningur sé upplýstur og þar af leiðandi hæfur til lýðræðislegrar ákvörðunartöku.
> 4.3 Upplýsingar eiga að vera aðgengilegar almenningi.
> 4.4 Upplýsingar skulu vera aðgengilegar á opnum gagnasniðum, á því formi sem er hentugast upp á notagildi upplýsinganna.
> 4.5 Til að einstaklingur geti borið ábyrgð þarf hann að hafa getu til að taka ákvarðanir.
> 4.6 Píratar telja að allir hafi óskoraðan rétt til aðkomu að ákvörðunum sem varða eigin málefni, og rétt til vitneskju um það hvernig slíkar ákvarðanir hafi verið teknar.
Tillögur stjórnlagaráðs (24. gr. Menntun):
> Öllum skal tryggður í lögum réttur til almennrar menntunar og fræðslu við sitt hæfi.
> Öllum þeim, sem skólaskylda nær til, skal standa til boða menntun án endurgjalds.
> Menntun skal miða að alhliða þroska hvers og eins, gagnrýninni hugsun og vitund um mannréttindi, lýðræðisleg réttindi og skyldur.
26. gr. Mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna:
Allir eiga rétt til menntunar. Skal hún veitt ókeypis, að minnsta kosti á grunnskóla- og undirstöðustigum. Grunnskólamenntun skal vera skylda. Starfsmenntun og sérmenntun skal standa öllum til boða og háskólamenntun vera öllum jafnfrjáls á hæfnisgrundvelli.
Menntun skal beina í þá átt að þroska persónuleika einstaklinganna og auka virðingu fyrir mannréttindum og grundvallarfrelsi. Hún skal miða að því að efla skilning, umburðarlyndi og vináttu meðal allra þjóða, kynþátta og trúarhópa og að styrkja starf Sameinuðu þjóðanna í þágu friðar.
Foreldrar skulu öðrum fremur ráða hverrar menntunar börn þeirra skuli njóta."
Skýrslu National Advisory Committee on Creative and Cultural Education - All Our Futures: Creativity, Culture and Education
http://www.sirkenrobinson.com/skr/pdf/allourfutures.pdf
Álykta Píratar:
- Að stuðla beri að frekara jafnvægis á milli bók-, list- og verkgreina í íslensku menntakerfi. Dæmi um kerfi sem þykir ná þessu jafnvægi er <a href="http://en.wikipedia.org/wiki/EducationinFinland">menntakerfi Finna</a>.
Að þáttur leiksins í öllu námi, lífi og starfi sé viðurkenndur og unnið að framgangi hans í menntakerfinu. Án gleði og áhuga á nám erfitt uppdráttar eins og rannsóknir sýna.
Að kennarar og nemendur leggi í sameiningu mat á námsframvindu og annað námsmat verði lagt niður, að undanskildum inntökuprófum milli skóla og skólastiga sem ekki er unnt að komast hjá miðað við núverandi stöðu mála. Samræmd próf og önnur stöðluð próf verði lögð niður.
Að nemendum skuli veitt öll sú aðstaða sem þarf til náms.
Að efnaminni nemendum sé gert kleift að taka þátt.
Að á hverjum tíma sé fylgst vel með nýjum kennsluháttum og kennurum gert kleift að innleiða þá. Sem dæmi má nefna vendikennslu og aukna hreyfingu/styttri setu, en það fyrra hefur gefið góða raun og vægi þess seinna í þágu náms og vellíðunar er margstaðfest í rannsóknum.
Að fækkað verði í bekkjum í samráði við kennara og nemendur, og/eða bekkir leystir upp og hópar myndaðir á grundvelli verkefna hverju sinni og/eða hugðarefna, þvert á aldur.
Að lögð verði áhersla á að auka virðingu gagnvart starfi kennara, meðal annars með hækkun launa og umfjöllun um skólastarf.
Að stuðla að aukinni samvinnu á milli menntakerfisins og samfélagins um nám og innihald þess.
Að nemendalýðræði verði aukið til muna á öllum skólastigum, meðal annars með rétti þeirra til ákvarðanatöku í eigin námi og í málefnum skólans sem þeir stunda nám við.
Að vægi vettvangsnáms verði meira í kennaramenntun og þeir kennarar sem taki á mótum kennaranemum fái ásættanleg laun fyrir það og svigrúm innan vinnudags til að sinna því starfi.
Að eftirfarandi námsáherslum sé gert hátt undir höfði:
Lýðræðisfræðslu, borgararéttindum og mannréttindum.- Að nám/leikur í eftirfarandi greinum verði ennfremur á öllum skólastigum:
Rekstur samfélags
Internet og samfélagið
Forritun
Fjármálalæsi
Siðvitund
Hvað eru fordómar og hvernig losum við okkur við þá
Fræðsla um þau störf sem eru unnin í samfélaginu
Að leita nýrra leiða til að auka þátttöku foreldra og nemenda í námi og skólastarfi.
Að láta kennara, skólastjórnendur nemendur og foreldra í sameiningu og á jafnræðisgrundvelli um þróun og þroskun skólans.
Að nota frjálsan hugbúnað sé hann í boði.
Að öll námsgögn sem eru búin til af námsgagnastofnun og kennurum skulu vera gefin út undir frjálsu höfundaleyfi (t.d. Creative commons) eða í almenningi (e. public domain) og ekki læst með DRM.
Að nám nemenda verði raunverulega einstaklingsmiðað, en ekki einungis á þann hátt að þeir fái sömu námsgögn í hendur og séu staddir hver á sínum stað í bókinni.
Að gengið sé út frá því að allir nemendur hafi eitthvað mikilvægt fram að færa, og leitað leiða til að allir fái að láta ljós sitt skína.
Að allir nemendur hafi aðgang að spjaldtölvum og/eða þeim tækjum sem gefa bestan og hagkvæmastan einstaklingsaðgang að námsefni hverju sinni.
Að í menntastefnu sé gengið út frá því að allir hafi sérþarfir og um leið að allir hafi sérgáfu.
Að boðið sé upp á fjölbreytt tómstundanám í skólum.
Að skólamáltíðir sé ódýrar, hollar og lystaukandi og gjaldtaka fari eftir efnahag foreldra.
Útgáfur
# | Staða | Höfundur | Lýsing |
---|---|---|---|
1 | Samþykkt | stefanvignir | |
2 | Tillaga | stefanolafs | |
3 | Tillaga | Kristinelfa | |
4 | Tillaga | b | Tók út tvírætt orðið "heimavinna". |
5 | Tillaga | bjornlevi | tók út tilvísun í spjaldtölvur og gerði skólamáltíðir fríar (annað úr finnsku stefnunni) |
6 | Tillaga | Kristinelfa | Tók inn og breytti samkvæmt fyrri breytingatillögum og athugasemdum, bætti einnig inn um ráðgjöf og handleiðslu, starfsþróun og nokkra fleiri þætti. |
7 | Tillaga | Stefan-Orvar-Sigmundsson | Fjarlægði gæsalöpp sem var ranglega staðsett. |