Samþykkt: Lagabreyting: Grein 13.5. Tilfærsla frambjóðenda í prófkjöri í stað endurtalningar með Schulze-aðferð.
Eftirfarandi breyting verður á grein 13.5 í lögum Pírata:
Í stað setningarinnar “Hafni frambjóðandi sæti eða geti af öðrum sökum ekki tekið því skal raða á lista með endurtalningu atkvæða að brottfelldum frambjóðanda.” kemur:
Hafni frambjóðandi sæti eða geti af öðrum sökum ekki tekið því skal afmá nafn hans af listanum og færa þá sem á eftir koma upp um eitt sæti.
Tilheyrandi mál: | Lagabreyting: Grein 13.5. Tilfærsla frambjóðenda í prófkjöri í stað endurtalningar með Schulze-aðferð. |
---|
Útgáfur
# | Staða | Höfundur | Lýsing |
---|---|---|---|
1 | Samþykkt | eirikurr | Þessi tillaga að lagabreytingum er lögð fram í kjölfar samráðsfunda stjórna aðildarfélaga, þingflokks, framkvæmdastjórnar, stefnu- og málefnanefndar, fjármálaráðs og starfsfólks Pírata og þingflokks Pírata. Samkvæmt orðanna hljóðan í lögum Pírata skal reikna niðurstöður kosninga innan Pírata með Schulze-aðferð. Ef einhver frambjóðanda segir sig af lista eftir að sá útreikningur hefur verið birtur þarf í núverandi lagaumhverfi að endurreikna allar niðurstöður kosninganna með Schulze-aðferð. Slíkt getur breytt uppröðun frambjóðendanna og er ógagnsætt, því engin auðveld leið er að sjá hvernig sú endurröðun myndi fara fram. Mun einfaldara og skiljanlegra væri ef frambjóðendur sem koma á eftir þeim frambjóðenda sem sagði sig af lista séu færðir upp um sæti til samræmis um það. Er hér lögð til breyting á lögum Pírata þess efnis. Þrátt fyrir að stutt sé til þess að prófkjör hefjist mun þessi breyting eiga sér stað áður en opnað verður á prófkjör. Því munu allir sitja við sama borð hvað þær reglur varða. Einnig er vert að taka fram að þessi lagabreyting er hlutlaus hvað varðar kjörgengi eða kosningarétt, eingöngu er verið að einfalda úrvinnslu kosninganna ef til þess kæmi að einhver sem hlyti sæti á framboðslista hafnaði því sæti. |