Samþykkt: Fjármögnun með styrkjum frá lögaðilum
Á félagsfundi Pírata þann 11. mars 2021 var samþykkt að senda eftirfarandi ályktun í kosningu.
Fundargerð félagsfundar:
Ályktun
Vill grasrót Pírata að félagið taki við styrkjum í formi þjónustu eða fjárúthlutunar frá lögaðilum um styrkveitingu til stjórnmálaflokka sem nema að hámarki 550.000kr?
(Sjá gr. 7 og gr. 8 í Lögum um fjármál stjórnmálasamtaka: https://www.althingi.is/lagas/nuna/2006162.html)
Ef einhver önnur upphæð lægri en hámarkið hugnast þér frekar (t.d. 50.000 kr, 250.000 kr eða 400.000 kr) settu þá upphæð í athugasemd.
Til athugunar þá eru nokkrir Píratar í forsvari fyrir lögaðila sem vilja eða eru að styrkja samtökin. Þessi vefkosning tæki af allan vafa um lögmæti þess.
Tillaga þessi hefur verið samþykkt með atkvæðagreiðslu.
Tilheyrandi mál: | Fjármögnun með styrkjum frá lögaðilum |
---|
Útgáfur
# | Staða | Höfundur | Lýsing |
---|---|---|---|
1 | Samþykkt | Gormur |