Ályktun um áherslur í menntamálum (staðfesting)
Ályktun um áherslur í menntamálum
Píratar styðja að áherslur menntun barna og unglinga verði breytt nokkuð, þannig að í skólanámsskrám allra skólastiga verði lögð aukin áhersla að draga kennsluefnið fram í nútímann. Þannig vantar í menntakerfið kennslu varðandi:
- Andleg veikindi og verkfæri sem nemendur geta notað til að vinna bug á þeim, þ.m.t. áhrif streitu, hugrænar atferlismeðferðir, ræktun andlegrar heilsu og slökun
- Fjármálalæsi, forritun og tölvunarfræði
- Heilbrigðismál, þ.m.t. fatlanir, geðsjúkdóma, ofbeldi, kynferðislegt ofbeldi og forvarnir
- Heimsmálin, þ.m.t. fátækt, kúgun, þrælkun, loftslagsbreytingar og umhverfismál
- Kynfræðslu, hinseginfræðslu og hinseginkynfræðslu
- Mannréttindi, lagaumhverfi, lýðræðisfræðslu og fræðslu um atvinnumarkaðinn
- Upplýsingalæsi í flóknum heimi frétta- og samfélagsmiðla
- Önnur málefni sem undirbúa skólabörn og unglinga fyrir samtímann og framtíðina.
Þessar kennsluáherslur eiga að rýmast innan núverandi skólakerfis og virkja þarf nemendur til að hafa áhrif á áherslur í kennslu og námsskrár í framtíðinni. Bjóða þarf kennurum og skólastjórnendum endurmenntun til að geta fullnýtt markmið aðalnámsskráa og skólanámsskráa ásamt því að koma á áherslum nemenda varðandi gæði og innihald menntunar.
Greinargerð:
Með þessari ályktun vilja Píratar styðja við hugmyndir skólakrakka úr 10. bekk Víðistaðaskóla sem þau söfnuðu saman og eru að safna undirskriftum fyrir á change.org/menntakerfidokkar.com.
Píratar vilja stórauka aðkomu og samráð við nemendur, og vilja að menntakerfið haldi áfram í þróun í takt við tímann. Áherslur munu stöðugt breytast, og það þarf að vera skýrt ferli sem nemendur geta notað til þess að kalla eftir aðlögun og breytingum. Með því tryggjum við velferð nemenda og ungs fólks, og aukum áhuga og gagn þeirra af námi.
Tilheyrandi mál: | Ályktun um áherslur í menntamálum |
---|
Útgáfur
# | Staða | Höfundur | Lýsing |
---|---|---|---|
1 | Hafnað | Gormur | Á félagsfundi Pírata þann 7. april 202 var samþykkt að senda eftirfarandi ályktun í kosningu með hraðmeðferð sbr. gr. 6.9 í lögum Pírata. 6.9. Sé þörf á skjótri ákvarðanatöku má leggja til, með samþykki stefnu- og málefnanefndar, hraðmeðferð á tillögu, en hún stendur þá yfir í sólarhring. Slíka ákvörðun þarf að staðfesta með hefðbundnum kosningum sem fara af stað samtímis. Skulu sérstök boð vera send til félagsmanna um að slík tillaga sé til kosningar. Fundargerð félagsfundar: Atkvæðagreiðsla í hraðmeðferð: HLEKK VANTAR |