Samþykkt: Lagabreytingar: Endurskoðendur
Lagabreyting: Kjör endurskoðanda
*1. gr *
Grein 4.11 fellur brott. Ný grein orðist svo:
“4.11 Á aðalfundi félagsins skal kjósa endurskoðunarfyrirtæki eða löggiltan
endurskoðanda skv. tillögu framkæmdastjórnar. Einnig skal kjósa tvo
skoðunarmenn reikninga með STV-forgangskosningu.”
2. gr
Í stað orðsins “fjármál” í gr. 13.2 kemur orðið “starfsemi”
3. gr
Á eftir grein 13.4 kemur ný grein, 13.5, sem orðast svo:
“13.5 Kjörtímabil endurskoðenda er 1 ár.”
Númer annara lagagreina breytast til samræmis.
Greinargerð
Árið 2021 var lögum 162/2006 um fjármál stjórnmálasamtaka breytt í heildarlög um
starfsemi stjórnmálasamtaka. Við þær breytingar bættist m.a. við skylda til að hafa
ákvæði um kjör og kjörtímabil endurskoðenda í samþykktum stjórnmálasamtaka en
algengast er að endurskoðendur séu kosnir á aðalfundi skv. tillögu stjórnar. Þessi
tillaga miðar að því að uppfylla lög um starfsemi stjórnmálsamtaka skv.
athugasemdum frá fyrirtækjaskrá
Tilheyrandi mál: | Lagabreytingar: Endurskoðendur |
---|
Útgáfur
# | Staða | Höfundur | Lýsing |
---|---|---|---|
1 | Samþykkt | Gormur | Þessi tillaga kemur frá framkvæmdastjórn og framkvæmdastjóra. |