Samþykkt: Lagabreyting um kjörstjórn

Tillaga þessi hefur verið samþykkt með atkvæðagreiðslu.
Tilheyrandi mál:Lagabreyting um kjörstjórn

Útgáfur

# Staða Höfundur Lýsing
1 Samþykkt Kristin

Nýr kafli 14 a/b Kjörstjórn
Kjörstjórn Pírata sér um samhæfingu kosningastarfs og tryggir að skilyrði framboðs séu uppfyllt, aðilar kjörstjórnar hafa ekki kjörgengi í prófkjörum en mega taka sæti á lista fyrir neðan þau sem kosið var í.
Við alþingiskosningar starfar kjörstjórn með kjördæmisráði í kjördæmi sé það til staðar. Sé ekki starfandi kjördæmisráð í kjördæmi skal kjörstjórn sjá um prófkjör og annað tengt framboði eftir atvikum í samstarfi við frambjóðendur og stjórn kjördæmafélags.
Við sveitarstjórnarkosningar starfar kjörstjórn með stjórn aðildarfélaga/kjördæmafélaga að prófkjörum þar sem Píratar hyggjast bjóða fram og tryggir í samstarfi við stjórnir og frambjóðendur að skilyrði framboðs séu uppfyllt.
Í kjörstjórn sitja þrír einstaklingar sem kosnir eru í beinni kosningu á aðalfundi. Sé ekki starfandi kjörstjórn er framkvæmdastjórn heimilt að skipa aðila í kjörstjórn
Kjörstjórn auglýsir og opnar fyrir kosningu í framboð í öllum kjördæmum eða sveitarfélögum sem bjóða á fram í, heimilt er að halda sameiginleg framboð í kjördæmum við alþingiskosningar. Kjörstjórn metur framboðsfrest sem má vera minnst 1 dagur. Kosning skal standa yfir í einn sólarhring og fara fram með Schulze forgangsröðun. Heimilt er að takmarka fjölda framboðssæta sem kosið er um að minnsta kosti 5 sæti í hverju kjördæmi eða sveitarfélagi, tilkynnt skal um takmörkun á fjölda sæta þegar auglýst er eftir framboðum.
Kjörstjórn staðfestir að frambjóðendur taki sæti á framboðslista samkvæmt niðurstöðu kosninga. Frambjóðendur mega færa sig niður um sæti og færast þá aðrir frambjóðendur ofar á lista eftir því.
Kjörstjórn tilkynnir niðurstöður kosninganna eftir að allir frambjóðendur hafa staðfest sæti sitt á framboðslista. Í tilkynningu kosninga skal koma fram hversu mörg atkvæði frambjóðendur þau sæti sem kosið er um í hverju kjördæmi eða sveitarfélagi fengu. Hverjum frambjóðanda er heimilt að óska eftir upplýsingum um fjölda atkvæða sem viðkomandi fékk.
Hver framboðslisti velur sér kosningastjórn kjördæmis eða sveitarfélags og ber ábyrgð á því að fylla upp í framboðslista, fá staðfestingu allra í framboði og safna undirskriftum. Skila skal tilbúnum framboðslista til viðeigandi kjörstjórnar fyrir tilskilinn tímafrest samkvæmt kosningalögum nr. 112/2021.