Tillaga: Lagabreytingartillaga - breytingar á framkvæmd kosninga

Enn er þetta einungis tillaga sem hefur ekki verið samþykkt með atkvæðagreiðslu.
Tilheyrandi mál:Lagabreytingartillaga - breytingar á framkvæmd kosninga

Útgáfur

# Staða Höfundur Lýsing
1 Tillaga Kristin

Fyrir liggur að Píratar verða að fara í töluverða endurskoðun á lögum félagsins. Eitt af því sem nauðsynlegt er að breyta er að við verðum að geta kosið um nauðsynlegar lagabreytingar án þess að kosningakerfið sé fastbundinn hluti af því. Fyrir því eru margvíslegar ástæður, en sú mest aðkallandi er sú að því kerfi er viðhaldið af sjálfboðaliðum sem eru hættir virkri þátttöku í félaginu og við getum ekki endalaust beðið þá um aðstoð við að nota kerfi sem er fastbundið í grundvallar ákvarðanatöku.

Það má einnig nefna að lítil yfirsýn er um það hver eru skráð í kosningakerfið, og erfitt að tryggja nauðsynlegt gagnsæi í framkvæmd kosninga. Þar að auki er kerfið orðið gamalt og enginn er í því að viðhalda því.

Ef þessi tillaga er samþykkt verður mögulegt að kjósa um nauðsynlegar breytingar á lögum á næsta aðalfundi, en í kjölfarið er nauðsynlegt að fara í vinnu við að betrumbæta bæði reglur flokksins um innri kosningar og uppfæra lög félagsins almennt.

Ástæðan fyrir því að þessi tillaga er sett í skyndimeðferð er til þess að tryggja að hægt verði að kjósa um nauðsynlegar lagabreytingar á aðalfundi félagsins sem fram fer 20. September næstkomandi.