Samþykkt: Umhverfismál
Tillaga að stefnu Pírata varðandi umhverfis, auðlinda og orkumál
Með tilvísun til
- grunnstefnu Pírata um gagnrýna hugsun og upplýsta stefnu 
- grunnstefnu Pírata um gagnsæi sem forsendu upplýstra ákvarðana almennings 
- grunnstefnu Pírata um að draga beri úr miðstýringu valds á flestum sviðum 
- ályktunar Pírata um gerð hagkerfisins 
- ályktunar Pírata um landbúnað 
og með hliðsjón af
- Meginreglum umhverfisréttar: 
- Varúðarreglu: Þegar hætta er á alvarlegum eða óafturkræfum áhrifum á umhverfi og náttúruauðlindir skal skorti á vísindalegri fullvissu ekki beitt sem rökum til að fresta kostnaðarhagkvæmum aðgerðum sem geta komið í veg fyrir áhrifin eða dregið úr þeim. 
- Greiðslureglu: Í því skyni að tekið sé tillit til umhverfiskostnaðar skal beita hagrænum stjórntækjum í samræmi við meginregluna um að sá sem mengar beri að jafnaði þann kostnað sem hlýst af því að koma í veg fyrir eða draga úr áhrifum vegna mengunar. 
- gr. Frumvarps stjórnlagaráðs til stjórnskipunarlaga um náttúru Íslands og umhverfi. http://stjornlagarad.is/starfid/frumvarp/grein/item35319/
 
- gr. Frumvarps stjórnlagaráðs til stjórnskipunarlaga um náttúruauðlindir. http://stjornlagarad.is/starfid/frumvarp/grein/item35320/
 
- gr. Frumvarps stjórnlagaráðs til stjórnskipunarlaga um upplýsingar um umhverfi og málsaðild. http://stjornlagarad.is/starfid/frumvarp/grein/item35321/
 
- Áherslu pírata á smáar rekstrareiningar í atvinnulífinu fremur en alþjóðleg stórfyrirtæki. 
- Þeirri staðreynd að mikill meirihluti orkuvinnslu á Íslandi er til þess að knýja álvinnslu. 
- Þeirri staðreynd að nýtt álver við Helguvík krefst umfangsmikilla jarðvarmavirkjanna um allan Reykjanesskaga sem vafi er um að geti talist sjálfbær nýting jarðhitans á svæðinu. 
- Reynslunni af rekstri jarðvarmavirkjanna í nágrenni höfuðborgarsvæðisins og loftmengunar. 
- Samróma áliti vísindaheimsins um veruleika loftslagsbreytinga sem birtist m.a. í skýrslum IPCC og fleiri aðila og sem bendir til þess að loftlagsbreytingar verði óafturkræfar ef ekki verður þegar í stað gripið til aðgerða sem minnka losun gróðurhúsalofttegunda. (skoða þetta betur, útfrá stærra samhengi) 
- Alþjóðlegum skuldbindingum Íslands um vernd votlendissvæða samkvæmt Ramsar-samningi. 
- Alþjóðlegum skuldbindingum Íslands sem snúa að losun gróðurhúsalofttegunda. 
Álykta Píratar eftirfarandi:
Almenn umhverfisstefna
- Framfylgja skal megin gildum sjálfbærrar þróunar. Sjálfbær þróun mætir þörfum samtímans án þess að draga úr möguleikum komandi kynslóða til að mæta þörfum sínum. Í þessu felst að sókn eftir efnahagslegum gæðum verður að haldast í hendur við vernd umhverfisins og grunngæða jarðar. 
- Stjórnvöld skulu byggja á varúðarreglunni og greiðslureglunni við allar ákvarðanir sem varða náttúru Íslands. 
- Tryggja skal upplýsingarétt almennings um umhverfismál, gagnsæi í allri stjórnsýslu umhverfismála og aðild almennings að ákvarðanatöku sem varðar umhverfi og náttúru. 
- Auðlindir í náttúru Íslands, sem ekki eru í einkaeigu, eru sameiginleg og ævarandi eign þjóðarinnar. Enginn getur fengið auðlindirnar, eða réttindi tengd þeim, til eignar eða varanlegra afnota og aldrei má selja þær eða veðsetja. 
- Almannaréttur skal verndaður. Ekki má leggja hömlur á för manna, svo lengi sem viðkvæm vistkerfi verða ekki fyrir röskun. 
| Tilheyrandi mál: | Umhverfismál | 
|---|
Útgáfur
| # | Staða | Höfundur | Lýsing | 
|---|---|---|---|
| 1 | Samþykkt | stefanvignir | |
| 2 | Tillaga | bjarki | tók út komment úr málefnavinnunni sem hefur óvart slæðst með |