Samþykkt: Lögfesting samnings SÞ um réttindi fatlaðs fólks
Með tilvísan í grunnstefnu Pírata:
2.1 Píratar beita sér fyrir eflingu og verndun borgararéttinda.
álykta Píratar hér með:
Samningur Sameinuðu Þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks skal vera lögfestur eins fljótt og auðið er.
Greinargerð
Til
að sækja rétt sinn í stjórnsýslu og fyrir dómstólum á grundvelli
alþjóðasamninga er afar mikilvægt að þeir samningar séu lögfestir og
hljóti því formlegt gildi. Fullgilding, þó góð sé, veitir almenningi
ekki eins sterkan rétt til þess að njóta þeirra mannréttinda sem
alþjóðasamningar veita. Engin trygging er falin í því að lögfesting
alþjóðasamninga fari fram á tilhlýðilegum tíma eftir að þeir hafa verið
fullgiltir. Til að mynda tók það næstum 41 ár að lögfesta
Mannréttindasáttmála Evrópu árið 1994 eftir að hann var fullgiltur árið
1953 og á þeim tíma gat almenningur ekki notið beinnar verndar hans.
Ítarefni
Samningur Sameinuðu Þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks:
http://www.innanrikisraduneyti.is/media/frettir-2013/CRPD-islensk-thyding.pdf
Tilheyrandi mál: | Réttindi fatlaðs fólks |
---|
Útgáfur
# | Staða | Höfundur | Lýsing |
---|---|---|---|
1 | Samþykkt | Kjarrval |