Um starf stjórnarskrárnefndar
Ofangreind tillaga er lögð fyrir kosningakerfi Pírata vegna þess að önnur tillaga var lögð fram þess efnis að Píratar taki afstöðu gagnvart drögum að tillögum nústarfandi stjórnarskrárnefndar um breytingar á stjórnarskrá Íslands eins og þær liggja fyrir nú.
Við sem stöndum að baki þessari tillögu teljum það ganga gegn ofangreindum ákvæðum grunnstefnu Pírata um upplýstar ákvarðanir og óháða stefnumótun að taka afstöðu með eða á móti tillögum sem eru í vinnslu og ekki hafa birst í endanlegri mynd. Eðlilegt er að taka afstöðu með tillögum þegar þær liggja fyrir.
Þá er ómögulegt að taka upplýsta ákvörðun um tillögur sem eru ekki til enda ekki fullmótaðar og óvíst hversu mikið efnisinnihald þeirra mun breytast.
Þá er vafasamt að kosningakerfi Pírata sé notað í annað en stefnumótandi tilgangi fyrir ákveðinn málefnaflokk og eðlilegast að Píratar skýri frekar hvað felist í stefnu samkvæmt lögum Pírata. Óljóst þykir hvort tilskipun um atferli nefndarmanns Pírata á Alþingi í tiltekinni nefnd geti talist stefna. Færa mætti rök fyrir því að slíkar tilskipanir séu ekki stefna í neinum skilningi og þar af leiðandi ótækar á kosningarkerfi Pírata almennt.
Í ljósi þeirrar stöðu að vafi leikur á um lögmæti þeirrar stefnu sem fyrir liggur í kosningakerfinu, er þessi stefna lögð fram sem andsvar við þeim vinnubrögðum. Tilgangur hennar er að Píratar geti einnig tekið afstöðu til þessara tillögu þar sem hin tillagan liggur einnig fyrir.
Málsnúmer: | 3/2016 |
---|---|
Tillaga: | Um starf stjórnarskrárnefndar |
Höfundur: | odin |
Í málaflokkum: | Lýðræði |
Upphafstími: | 20/01/2016 20:52:45 |
Umræðum lýkur: | 03/02/2016 00:00:00 (0 minutes) |
Atkvæðagreiðsla hefst: | 27/01/2016 00:00:00 (0 minutes) |
Atkvæðagreiðslu lýkur: | 03/02/2016 00:00:00 (0 minutes) |
Atkvæði: | 107 (9 sitja hjá) |
Já: | 64 (59,81%) |
Nei: | 43 |
Niðurstaða: | Samþykkt |
Meirihlutaþröskuldur: | 50,00% |
Umræða
Þessu máli lauk fyrir nokkru síðan og er því krafist innskráningar til að sjá umræðu.
Með tilvísun í:
- Gr. 1.1 í grunnstefnu Pírata um gagnrýna hugsun og vel upplýstar ákvarðanir,
- Gr. 1.2 í grunnstefnu Pírata um að stefna skuli mótuð óháð því hvort tillaga virðist í fyrstu æskileg
eða ekki, og því hverjir fortalsmenn hennar eru, - Og gr. 6.3 í grunnstefnu Pírata um að efla þurfi beint lýðræði í þeim formum sem bjóðast,
og hliðsjón af:
- þeirri staðreynd að ekkert er því til fyrirstöðu að umbætur verði gerðar á núgildandi stjórnarskrá þó
svo að stefnt sé að samþykkt nýrrar, - þvi að samkvæmt gildandi ákvæðum um breytingar á stjórnarskrá liggur ljóst fyrir að lokadómur um
gildistöku slikra breytinga liggi hjá þjóðinni
álykta Píratar að:
Leitast verði við að gera stjórnarskrárnefnd kleift að ljúka störfum sínum og skila niðurstöðu.
Að tekin skuli afstaða til tillagna nefndarinnar um endurskoðun þegar þær eru fullunnar.
Að afstaða til þess hvort Pírötum beri að hafna tillögunum eða samþykkja þær, verði ekki tekin fyrr
en þær hafa verið gerðar opinberar.