Sérstakar hæfisreglur þingmanna
Með setningu ákvæða er varða sérstakt hæfi þingmanna má ætla að ákvæðin væru til þess fallin að tryggja mun betur að þingmenn setji almannahagsmuni framar sínum eigin hagsmunum eða hagsmunum venslamanna sinna. Jafnframt yrðu slíkar reglur til þess fallnar að minnka til muna þá hættu að þingmaður lendi í því að verða fyrir mögulegum ásökunum, t.d. um að hann hafi með ákvörðun sinni látið eigin- eða venslahagsmuni ganga framar hagsmunum hins almenna borgara.
Skýrar reglur er varða sérstakt hæfi þingmanna gætu mögulega létt á herðum þeirra þann þrýsting sem kemur frá áhrifamiklum aðilum í atvinnulífinu, að þingmenn verði við óskum þeirra og hagsmunir atvinnulífsins séu settir framar öðrum hagsmunum. Téðir áhrifamenn hafi séð til þess að viðkomandi þingmaður hafi komist til starfa á þingi til að vinna að þeirra hagsmunum umfram almannahagsmunum.
Kjósendur hafa oft orðið þess varir að þingmenn hafi verið kosnir á þing sökum tengsla sinna við félög eða samtök eða ákveðin málstað og hafa varist fyrir þeim hagsmunum þar. Líkt og Páll Hreinsson lagaprófessor hefur bent á þá endurspegla oftar en ekki slík tengsl þau lífsviðhorf sem þessir þingmenn berjast fyrir.
Málsnúmer: | 13/2016 |
---|---|
Tillaga: | Sérstakar hæfisreglur þingmanna |
Höfundur: | odin |
Í málaflokkum: | Gagnsæi |
Upphafstími: | 27/02/2016 19:14:06 |
Umræðum lýkur: | 12/03/2016 19:14:06 (0 minutes) |
Atkvæðagreiðsla hefst: | 05/03/2016 19:14:06 (0 minutes) |
Atkvæðagreiðslu lýkur: | 12/03/2016 19:14:06 (0 minutes) |
Atkvæði: | 118 (2 sitja hjá) |
Já: | 99 (83,90%) |
Nei: | 19 |
Niðurstaða: | Samþykkt |
Meirihlutaþröskuldur: | 50,00% |
Umræða
Þessu máli lauk fyrir nokkru síðan og er því krafist innskráningar til að sjá umræðu.
Með vísan til grunnstefnu Pírata:
- 1.1 Píratar leggja áherslu á gagnrýna hugsun og vel upplýstar ákvarðanir.
Með hliðsjón af:
- Lög nr. 37/1993. Stjórnsýslulög, lög nr. 55/1991 um þingsköp og álitsgerð Páls Hreinssonar lagaprófessors um sérstakt hæfi þingmanna.
Álykta Píratar að...
Settar verði reglur sem úrskurða um hæfi þingmanna til aðildar að málum er varða beina eða óbeina hagsmuni þeirra.
Hæfisreglur stjórnsýsluréttar verði hafðar til hliðsjónar við vinnslu hæfisreglna þingmanna.
Hæfisreglum þingmanna verði bætt við ákvæði laga nr. 55/1991 um þingsköp.