Íbúðalánasjóður undir Landsbankann

Tillögu þessari hefur verið hafnað með atkvæðagreiðslu.

GREINARGERÐ

Með sameiningu Íbúðalánasjóðs og Landsbanka næst fram áhættudreifing og hagræðing sem felst í dreifðu eignasafni. Úr skýrslu Alþingis um Íbúðalánasjóðs: „Frá stofnun 1999 til ársloka 2012 hefur bókfært tap verið eftirfarandi (á verðlagi 2012): Vegna útlána og fullnustueigna, 57 milljarðar. Vegna lausafjárstýringar, 17 milljarðar. Vegna uppgreiðslna og fl. 27 milljarðar. Samtals 100 milljarðar. Þar af 80 milljarðar frá árinu 2008“. Ekki er verið að taka afstöðu til félagslegs hlutverks Íbúðarlánasjóðs hér. Ekkert er því til fyrirstöðu að Landsbanki taki að sér það hlutverk með rekstri sjóðsins. Meðfylgjandi er skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis um Íbúðalánasjóð.

Hagsjá Landsbanka 6/01/2016: Íbúðalánasjóður – hvað svo?
"Meirihluti fjárlaganefndar hefur ítrekað varað við því að verði ekkert að gert varðandi Íbúðalánasjóð muni framlög til hans halda áfram að aukast um árabil. Í fjárlögum ársins 2016 er þannig gert ráð fyrir 1,3 ma. kr. framlagi til sjóðsins í ár." https://www.landsbankinn.is/markadir/efnahagsmal/2016/01/06/Hagsja-Ibudalanasjodur-hvad-svo/?page=14

http://www.rna.is/media/skjol/RNAib_kynning.pdf
http://www.rna.is/ibudalanasjodur/skyrsla-nefndarinnar/

Hér má búast við að fjáraustur ríkissjóðs til ÍLS hætti við þessa aðgerð. Hefur kostað 100 milljarða hingað til.

Áætlaður árlegur sparnaður rikissjóðs af þessari aðgerð: 1,3 milljarðar

Málsnúmer: 37/2016
Tillaga:7 Íbúðalánasjóður undir Landsbankann
Höfundur:mordur
Í málaflokkum:Fjárlög, ríkisfjármál og opinber innkaup
Upphafstími:27/05/2016 15:20:27
Atkvæðagreiðsla hefst:03/06/2016 15:20:27 (0 minutes)
Atkvæðagreiðslu lýkur:10/06/2016 15:20:27 (0 minutes)
Atkvæði: 103 (6 sitja hjá)
Já: 42 (40,78%)
Nei: 61
Niðurstaða:Hafnað
Meirihlutaþröskuldur:50,00%

Umræða

Þessu máli lauk fyrir nokkru síðan og er því krafist innskráningar til að sjá umræðu.