Ráðgefandi kosning um prófkjör
Þegar niðurstaða starfshópsins um útfærslu á þessari aðferð liggur fyrir, verður hún sett inn á umræðukerfið.
| Málsnúmer: | 3/2016 |
|---|---|
| Tillaga: | Ráðgefandi kosning um prófkjör |
| Höfundur: | Katla |
| Í málaflokkum: | Innra skipulag Pírata í Reykjavík |
| Upphafstími: | 01/07/2016 13:03:05 |
| Atkvæðagreiðsla hefst: | 06/07/2016 12:00:00 (0 minutes) |
| Atkvæðagreiðslu lýkur: | 11/07/2016 12:00:00 (0 minutes) |
| Atkvæði: | 58 |
| Já: | 48 (82,76%) |
| Nei: | 10 |
| Niðurstaða: | Samþykkt |
| Meirihlutaþröskuldur: | 50,00% |
Umræða
Þessu máli lauk fyrir nokkru síðan og er því krafist innskráningar til að sjá umræðu.
Notast verður við svokallaðan „dreifilista“ í komandi prófkjöri, í samvinnu við Suðvestur-kjördæmi. Dreifilistinn felur í sér að allt félagsfólk með lögheimili á höfuðborgarsvæðinu (Þ.E. innan þeirra þriggja kjördæma sem þar liggja) getur kosið á einn sameiginlega lista fyrir öll kjördæmin þrjú. Þegar niðurstöður þessa sameiginlega lista liggja fyrir mun hann dreifast niður á kjördæmin. Mun fyrst og fremst kosningastjóri og aðrir óháðir aðilar sinna þeirri vinnu ásamt þeim frambjóðendum sem raðast í efstu 30 sætin.
Nákvæm útfærsla er enn óljós en hún mun þó liggja fyrir ekki seinna en 3. Júlí. Tillagan fær fimm sólarhringa í umræður og fimm sólarhringa í kosningu. Tillagan verður lögð inn í kosningakerfið 1. Júlí og mun kosning hefjast 6. júlí.