Samþykkt: Barnavelferðarstefna Pírata í Kópavogi
Leiðarljós:
-Barnið og þarfir þess eru í öndvegi
-Tryggjum að raddir barna heyrist og að á þær sé hlustað
-Öll börn eiga rétt á að alast upp við öryggi og jákvæða tengslamyndun
-Gætum að réttindum barna í hvívetna
-Eflum og virðum fagmennsku í öllu starfi með börnum
-Notum fjölbreyttar leiðir til að styðja við börn og fjölskyldur þeirra
-Stuðlum að heilsu og vellíðan í öllu starfi með börnum
-Skólakerfið á að undirbúa einstaklinga fyrir að vera hluti af samfélaginu
-Hjálpum börnum að bera kennsl á sérgáfur sínar og rækta þær
-Tryggjum jöfn tækifæri allra barna
-Vinnum gegn stjúpblindu
Markmið:
- Allt barnastarf og þjónusta við börn mótist út frá þörfum barnsins fremur en kerfisins þannig að barnið fái að njóta vafans. Börnum sem líður vel farnast vel.-
- Brjótum upp hinn hefðbundna skóladag og verum skapandi í skipulagi skóladagsins þannig að mismunandi þarfir, athyglissvið og orka nemenda nýtist vel og þau njóti kennslunnar. Aukum flæði milli faga og kennslustunda og sköpum svigrúm til að víkja frá viðjum vanans með rými fyrir fjölbreyttar þarfir. Til dæmis með því að skoða lengd kennslustunda, uppbrot á þeim og notkun á líkamlegri virkni og leik.
- Leikskóla ætti að skilgreina sem grunnþjónustu í lögum og sveitarfélögum tryggðar tekjur til að halda henni úti.
- Íþróttastarf sé sniðið að þörfum einstaklingsins og metið út frá persónulegum árangri og ánægju.
- Bjóðum börnum upp á fjölbreytt íþrótta- og tómstundastarf sem víðast sem hentar sem flestum svo öll börn geti fundið eitthvað við hæfi.
- Mikilvægt er að öll börn njóti góðs af íþrótta- og tómstundastarfi til 18 ára aldurs í skjóli fyrir afreksmiðaðri nálgun. Tryggja þarf að félög sem starfa samkvæmt samningum við sveitarfélögin sinni öllum börnum sem vilja stunda íþróttir og tómstundir.
- Tryggjum góða samfellu milli skólastiga og eflum félagsstarf fyrir unglinga á framhaldsskólaaldri í samstarfi við framhaldsskólana og ríkið.
- Stuðlum að fullnægjandi svefni barna og að virknidagur þeirra fylgi líkamsklukku þeirra.
- Nám barna fari fram á skólatíma í stað heimanáms þannig gætt sé að frítíma barna og komið í veg fyrir að aðstöðumunur hafi áhrif á árangur.
- Styðjum við góðan námsárangur og líðan barna með því að stuðla að því að börn tileinki sér lestur sem fyrst, í samvinnu við skóla og heimili.
-Sköpum gæðastundir og einblínum á að viðmót kerfisins sé hvetjandi.-
- Skóla-, frístunda- og tómstundastarf sé ánægjulegur vettvangur sem stuðlar að líkamlegri og andlegri heilsu og vellíðan barna.
- Börnum séu tryggð viðunandi og heilsusamleg aðstaða og umhverfi.
- Tryggja skal að börn geti notið frímínútna á þann hátt sem þeim hentar til að hvíla hugann frá náminu.
- Setja þarf markmið um að efla alhliða hreyfigetu og þroska sem er lykilatriði í velgengni í íþróttum og hreyfingu.
- Tryggjum að notkun snjalltækja á skólatíma sé uppbyggileg og nýtist í náminu. Notkun einkatækja í skólum er ábyrgðarhlutur sem er mikilvægt að börn séu frædd um. Til dæmis með tilliti til ofnotkunar, svikahrappa, rangra upplýsinga, hópamyndunar og eineltis. Það er mikilvægt að börn læri að umgangast tæknina og samfélagsmiðla af gagnrýni og ábyrgð.
-Stuðlum að betra samfélagi fyrir börn. Nýtum til þess snemmtæka íhlutun, fyrirbyggjandi aðferðir og leggjum áherslu á samvinnu og aukinn tíma með forsjáraðilum.-
- Beita skal snemmtækri íhlutun frá fyrstu árum barna þannig að fjármagn vegna stuðnings sé ekki bundið við greiningar en greiningum sé þó áfram beitt til að meta hvernig sé best að veita stuðning.
- Skimum börn sem sýna slakan námsárangur eða bera með sér merki um vanlíðan til að greina hvað það er sem veldur og veita viðeigandi stuðning í víðtækum skilningi.
- Eflum tækifæri fjölskyldna til að verja meiri tíma saman með það markmið að efla örugga tengslamyndun barna og forsjáraðila.
- Styðjum við heimili sem eru í viðkvæmri stöðu, rjúfum vítahring fátæktar og ofbeldis og styðjum forsjáraðila sem eiga sjálfir reynslu af tengslarofi eða ofbeldi í æsku.
- Leggjum áherslu á að forvarnarstarf byggi á gögnum og að gengið sé út frá “fræðslu en ekki hræðslu”.
-Valdeflum börn svo þau fái tækifæri til að verða öflugir lýðræðisborgarar með sterka samfélagsvitund, víðsýni og gagnrýna hugsun.-
- Tryggjum börnum möguleika til þátttöku og samráðs við ákvarðanatöku sem varðar þeirra umhverfi, menntunar- og tómstundastarf.
- Mikilvægt er að nám sé markvisst, faglegt, fjölbreytt og veiti undirbúning í að meta upplýsingar, taka ákvarðanir og bera ábyrgð á sjálfum sér.
- Aukum samráð ríkis og sveitarfélaga við gerð betri námsgagna sem tali saman þvert á námsgreinar og skólastig.
- Leggjum áherslu á læsi í víðum skilningi og hagnýta samfélagsþekkingu og lífsleikni eins og tækniþekkingu, tilfinningagreind, eflingu sjálfsmyndar, núvitund, fjármálalæsi, sköpunarkjark og foreldrahlutverk.
- Tengjum saman ólíkar greinar: verklegar, bóklegar og skapandi. Aukum virðingu fyrir mismunandi færni og nýtum samlegðaráhrif milli þeirra.
- Þróum Vinnuskólann áfram í þágu þess að efla víðsýni og samfélagsþekkingu ungmenna og tengjum hann betur við aðra menntun og fjölbreytta fræðslu. Vinnuskólinn ætti að vera á ábyrgð menntasviðs.
- Styðjum við félagsþroska barna og ungmenna og aukna fjölbreytni í valfögum.
- Vinnum gegn fordómum með áherslu á teymisvinnu þar sem ólíkir einstaklingar koma saman og sérgáfur hvers eins barns fá að blómstra á jafnréttisgrunni.
- Tryggjum jafnréttis-, hinsegin-, kynja- og kynfræðslu fyrir öll börn á öllum skólastigum og í félagsmiðstöðvum.
-Tryggja skal mannréttindi barna.-
- Tryggjum jafnrétti allra barna til náms, tómstunda og leiks óháð samfélagslegri stöðu, svo sem efnahag, uppruna, menningu, kyni, kynhneigð eða fötlun.
- Réttur barna til friðhelgis einkalífs skal ávallt tryggður.
- Vinnum gegn ofbeldi, áreitni og einelti þvert á allt barnastarf.
- Starfsfólk í barna- og ungmennastarfi hljóti nauðsynlega jafnréttis-, kynja- og hinseginfræðslu.
- Sálfræðiþjónusta, félagsráðgjöf og annar stuðningur sé í boði innan skólanna til að takast á við áskoranir nemenda.
- Vinnum að því að skólamáltíðir verði gjaldfrjálsar.
- Tryggjum aðgengi að tónlistarnámi óháð efnahag.
- Bætum jafnrétti í upplýsingagjöf og þjónustu vegna barna óháð hjúskaparstöðu forsjáraðila og gerum betur ráð fyrir stjúpfjölskyldum, fjölda heimila og fjölbreyttum fjölskylduformum.
- Veitum gjaldfrjálsa og aðgengilega móðurmálskennslu og íslenskukennslu barna með annað móðurmál en íslensku.
- Styðjum við aukna notkun frístundastyrksins meðal þeirra hópa sem nýta sér hann minna en aðrir. Skoðum að bjóða upp á frístundastyrkinn fyrir yngri börn.
- Tryggjum fullnægjandi upplýsingar um íþróttir og tómstundir á öðrum tungumálum en íslensku.
- Tryggjum jafnt aðgengi að leikskólavistun óháð efnahag og sköpum hvata til styttri dagvistunar með 6 tíma gjaldfrjálsum leikskóla.
-Nýtum fagþekkingu og tækniþróun til að efla faglegt starf-
- Styðjum við hugmyndaauðgi, nýsköpun og þróun í kennsluháttum með fjölbreyttu rekstrarformi skóla.
- Valdeflum starfsfólk og bjóðum upp á öflug tækifæri til endurmenntunar.
- Styðjumst við fagleg vinnubrögð og gagnreynda aðferðafræði í öllu starfi með börnum.
- Eflum menntun og verkfærakistur til nýsköpunar.
- Styrkjum tæknilega innviði í skólakerfinu.
- Viðurkennum að leikskólinn er fyrsta menntastig barna og vinnum að því að uppfylla kröfur um hlutfall faglærðra leikskólakennara.
-Tryggjum viðeigandi umönnun barna frá fæðingarorlofi, verum opin fyrir fjölbreyttum lausnum og komum til móts við barnafjölskyldur.-
- Uppfyllum þörfina fyrir fjölda leikskólaplássa frá fæðingarorlofi í nærumhverfi barnsins og styðjum við skilvirka nýtingu þeirra.
- Verndum heilsu barna og stuðlum að tengslamyndun þeirra við forsjáraðila sína og nærfjölskyldu.
- Bjóðum heimgreiðslur til forsjáraðila á meðan beðið er eftir leikskólaplássi.
Tilheyrandi mál: | Barnastefna Pírata í Kópavogi |
---|
Útgáfur
# | Staða | Höfundur | Lýsing |
---|---|---|---|
1 | Samþykkt | Gormur | Allar stefnur vegna kosninga 2022: Fundargerð félagsfundar: |