Samþykkt: 1 Fjármagnstekjuskattur
1 FJÁRMAGNSTEKJUSKATTUR
Með tilvísun í grunnstefnu Pírata
1.1 Píratar leggja áherslu á gagnrýna hugsun og vel upplýstar ákvarðanir.
Og með hliðsjón af Stefnu Pírata um Ríkissjóð og skattheimtu, gr. 5.:
Við alla álagningu skatta skal áhersla lögð á að skatturinn sé sýnilegur og skiljanlegur greiðanda.
Píratar álykta að til að eftifarandi sé stefna Pírata:
Fjármagnstekjuskattur (fjármunatekjuskattur) verði hækkaður úr 20% í 30%.
Tilheyrandi mál: | Fjármagnstekjuskattur |
---|
Útgáfur
# | Staða | Höfundur | Lýsing |
---|---|---|---|
1 | Samþykkt | mordur | GREINARGERÐ Skatttekjur ríkissjóðs af einstaklingum, að fjármagnstekjukatti meðtöldum, eru um 170 milljarðar á ári. Fjármagnstekjuskattur (fjármunatekjuskattur) er nú 20% og áætlað er að hann skili ríkissjóði 30 milljörðum á fjárlögum 2016. Væri skatturinn hækkaður í 30% má búast við að þessi tekjuliður skili 15 milljörðum hærri upphæð, eða samtals 45 milljörðum. 30% fjármunatekjuskattur er algengt skatthlutfall meðal nágranna okkar og skatturinn tiltölulega lágur á Íslandi miðað við það. Hafa ber í huga að skv. skattframtölum eiga ríkustu 10-11%íslendinga 70-75% af eignum landsmanna, þannig að ætla má að nær öll hækkunin yrði borin af breiðustu bökum þjóðfélagsins. Heimild http://www.ruv.is/frett/rikasta-prosentid-a-naer-fjordung-audsins Fjármagnstekjuskattur í Evrópu og víðar. Píratar gera ráð fyrir að frítekjumark verði tekið upp til að hlífa smærri fjármagnseigendum. https://en.wikipedia.org/wiki/Capitalgainstax#Finland Áætlaðar árlegarviðbótartekjur ríkissjóðs af þessari aðgerð eru 15 milljarðar. |