Samþykkt: Stefna um stjórnskipunarlög
Með tilvísun til
- greinar 2.1 í grunnstefnu Pírata um eflingu borgararéttinda
- greinar 2.3 í grunnstefnu Pírata um vörn þeirra réttinda sem þegar eru til staðar
- ályktunar aðalfundar Pírata 2015 um Stjórnarskrá stjórnlagaþings og kosning um ESB viðræður
og með hliðsjón af
- lögum nr. 33/1944, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands,
- frumvarpi Stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá,
- orðalagi fyrstu spurningar í þjóðaratkvæðagreiðslunni 20. okt. 2012
- þeirri staðreynd að æskilegt sé að texti laganna endurspegli raunverulega framkvæmd þeirra
- og sögu tilrauna til að endurskoða stjórnarskrá lýðveldisins, sem upphaflega var samþykkt til bráðabirgða
álykta Píratar eftirfarandi:
Samþykkja skal nýja stjórnarskrá þar sem tillögur stjórnlagaráðs verða lagðar til grundvallar.
Það þýðir að samþykkja skuli frumvarp til stjórnskipunarlaga sem er í samræmi við frumvarp Stjórnlagaráðs í öllum efnisatriðum.
Tillaga þessi hefur verið samþykkt með atkvæðagreiðslu.
Tilheyrandi mál: | Breyting á stefnu um stjórnskipunarlög |
---|
Útgáfur
# | Staða | Höfundur | Lýsing |
---|---|---|---|
1 | Úrelt | odin | |
2 | Samþykkt | odin | Í þessari breytingartillögu felst engin efnisleg breyting. Tilgangur hennar er eingöngu að samræma orðalag stefnunnar við ályktun aðalfundar Pírata 2015 og orðalagið í fyrstu spurningu þjóðaratkvæðagreiðslunnar 20. okt. 2012. Með samræmdu orðalagi eru minni líkur á að stefnan sé mistúlkuð eða misskilin. |