Breyting á kjörgengi til framkvæmdaráðs (varamenn)
Gr. 7.5 orðist svo:
"Kjörgengir til framkvæmdaráðs eru þeir sem hafa verið skráðir í félagið í 30 daga eða lengur. Alþingismenn, sveitarstjórnarfulltrúar, og aðrir Píratar sem hafa meginstarf í kjörnu embætti eru þó ekki kjörgengir í framkvæmdaráð. Píratar sem gegna varamennsku fyrir embætti geta setið í framkvæmdaráði svo lengi sem þeir víki úr ráðinu á meðan þeir sinna skyldum sínum tengdum varamennsku.
Enginn skal sitja samfleytt í framkvæmdaráði lengur en tvö kjörtímabil."
Tilheyrandi mál: | Breyting á kjörgengi til framkvæmdaráðs (varamenn) |
---|
Útgáfur
# | Staða | Höfundur | Lýsing |
---|---|---|---|
1 | Hafnað | Bergthor | Innsett fyrir hönd og að beiðni Ásmundar Ölmu Guðjónssonar Greinargerð: Tilgangur breytingarinnar er að gera varaþingmenn og varafulltrúa í sveitarstjórnum kjörgenga til framkvæmdarráðs. Með orðalaginu "að meginstarfi" er vísað til þess að varamaður í sveitarstjórn getur verið í þeirri stöðu að vera í fullu starfi eða nálægt því sem varamaður. Þetta á sérstaklega við um 1. varamann í borgarstjórn Reykjavíkur. Eina hlutverk varaþingmanns er að bíða eftir því að fara inn á þing. Ef varaþingmaður er í 4 ár að bíða eftir því að fara inn á þing, er það óhentugt að hann/hún geti ekki látið að kveða í framkvæmdaráði sé áhugi á því til staðar. Einnig er möguleiki á að aðstæður komi upp þar sem aðili sem ekki hefur kjörbréf varaþingmanns, en var samt á framboðslista, komist inn á þing undir sérstökum kringumstæðum, en samkvæmt núgildandi lögum þá missir sá aðili kjörgengi sitt til framkvæmdarráðs allt það kjörtímabil. Greinargerð fyrri útgáfu heldur einnig vægi sínu: Núgildandi gr. 7.5 er orðuð svona: |