Samþykkt: Lagabreytingar: Lækkun aldurstakmarks II
Breyting á lögum Pírata (lækkun aldurstakmarks fyrir aðild)
1. gr.
Í stað orðsins “16” í 3.1. gr. kemur: 15.
- gr.
Breyting þessi tekur þegar gildi.
Greinargerð.
Tillagan lækkar aldurstakmark um aðild að Pírötum frá 16 árum niður í 15.
Stjórnmálaþátttaka ungs fólks hefur mikið verið til umræðu undanfarin misseri, en átök hafa
verið haldin til að reyna að fá ungt fólk í auknum mæli á kjörstað. Þar má sérstaklega nefna
/#ÉgKýs átakið sem hefur þótt einstaklega vel unnið. Einnig má nefna loftslagsmótmæli
undanfarinna ára þar sem börn hafa beitt sér á öflugan hátt fyrir umbótum, en hreyfingin var
stofnuð af Gretu Thunberg, sem var þá 15 ára, og hafa börn jafnvel yngri en 13 ára tekið virkan
þátt. Þessi hópur hefur greinilegan áhuga og getu til að taka þátt í stjórnmálaumræðu og hefur
ekki sama aðgang og aðrir.
Börn eru hagsmunahópur í einstaklega viðkvæmri samfélagslegri stöðu. Enginn annar hópur í
samfélaginu er hefur jafn lítið vald yfir eigin aðstæðum. Þessi sérstaða skapar einstaka
hagsmuni og sjónarmið, sjónarmið sem er nauðsynlegt fyrir upplýsta stjórnmálaumræðu um
málefni barna.
Börnum er þegar treyst til að taka þátt í samfélaginu á ýmsan hátt. 15 ára verða börn sakhæf,
13 ára er þeim treyst til að geta veitt samþykki fyrir vinnslu persónuupplýsinga. Takmarkanir á
stjórnmálaþátttöku hóps með einstaka hagsmuni og sjónarmið verða að vera einstaklega vel
rökstudd, enda lýðræðinu ætlað að tryggja það að allir hafi rödd í ákvörðunum um þær reglur
sem samfélagið setur. Beri einstaklingar ábyrgð á gjörðum sínum fyrir dómstólum ættu þeir
einstaklingar að hafa aðgang að þeim lýðræðislegu ferlum sem móta lögin, og sé þeim treyst
fyrir slíkri ábyrgð ættu Píratar að geta treyst þeim til að taka þátt í stefnumótun félagsins.
Tilheyrandi mál: | Lagabreytingar: Lækkun aldurstakmarks II |
---|
Útgáfur
# | Staða | Höfundur | Lýsing |
---|---|---|---|
1 | Samþykkt | Gormur | Á félagsfundi þann 25. nóvember 2021 var samþykkt að setja lagabreytingatillögu um aldurstakmark félagsaðildar í vefkosningu í rafrænu kosningakerfi Pírata í samræmi við grein 6.7 í lögum Pírata 6.7. Með samþykki 5% fundarmanna á almennum félagsfundi, en lágmark þriggja, skal vísa tillögu að stefnu til rafrænna kosninga. Fundargerð fundarins má nálgast hér: https://github.com/piratar/Skjalasafn/blob/master/Fundargerdir/Felagsfundir/2021/2021-11-25.pdf |