Drög stjórnarskrárnefndar að ákvæði um náttúru og umhverfi
Tillaga samþykkt á félagsfundi 25. febrúar 2016
Málsnúmer: | 10/2016 |
---|---|
Tillaga: | Drög stjórnarskrárnefndar að ákvæði um náttúru og umhverfi |
Höfundur: | bjornlevi |
Í málaflokkum: | Lýðræði |
Upphafstími: | 26/02/2016 11:57:01 |
Umræðum lýkur: | 11/03/2016 11:57:01 (0 minutes) |
Atkvæðagreiðsla hefst: | 04/03/2016 11:57:01 (0 minutes) |
Atkvæðagreiðslu lýkur: | 11/03/2016 11:57:01 (0 minutes) |
Atkvæði: | 170 (1 sitja hjá) |
Já: | 68 (40,00%) |
Nei: | 102 |
Niðurstaða: | Hafnað |
Meirihlutaþröskuldur: | 50,00% |
Umræða
Þessu máli lauk fyrir nokkru síðan og er því krafist innskráningar til að sjá umræðu.
Með tilvísun til eftirfarandi greina í grunnstefnu Pírata
1.1 Píratar leggja áherslu á gagnrýna hugsun og vel upplýstar ákvarðanir.
1.2 Í þessu felst að Píratar móti stefnu sína í ljósi gagna og þekkingar sem er aflað óháð því hvort tillaga virðist í fyrstu æskileg eða ekki. Afstaða Pírata til hugmynda er óháð því hverjir fortalsmenn hennar eru.
6.1 Píratar telja að allir hafi rétt til að koma að ákvarðanatöku um málefni sem varða þá.
6.2 Réttur er tryggður með styrkingu beins lýðræðis og eflingu gegnsærrar stjórnsýslu.
6.3 Píratar telja að draga þurfi úr miðstýringu valds á öllum sviðum og efla þurfi beint lýðræði í þeim formum sem bjóðast.
Álykta Píratar
Píratar styðja að drög að frumvarpi stjórnarskrárnefndar um náttúru og umhverfi fái þinglega meðferð.
Greinargerð
Ályktun þessi lýtur að tillögu að ákvæði um náttúru og umhverfi sem stjórnarskrárnefnd birti til kynningar og umsagna, föstudaginn 19. febrúar síðastliðinn. Tillagan er svohljóðandi:
>Náttúra Íslands er undirstaða lífs í landinu. Ábyrgð á vernd náttúru og umhverfis hvílir sameiginlega á öllum og skal verndin grundvallast á varúðar- og langtímasjónarmiðum með sjálfbæra þróun að leiðarljósi. Stuðlað skal að því að fjölbreytni náttúrunnar sé viðhaldið og vöxtur lífríkis og viðgangur tryggður.
Allir skulu njóta heilnæms umhverfis. Almenningi er heimil för um landið og dvöl þar í lögmætum tilgangi. Ganga skal vel um náttúruna og virða hagsmuni landeigenda og annarra rétthafa. Mælt skal nánar fyrir í lögum um inntak og afmörkun almannaréttar.
Í lögum skal mælt fyrir um rétt almennings til upplýsinga um ástand umhverfis og áhrif framkvæmda á það svo og til þátttöku í undirbúningi ákvarðana sem áhrif hafa á umhverfið.
Þrátt fyrir að stjórnarskrárnefnd hafi skilað tillögum til umsagna er yfirstandandi ferli hvergi nærri lokið. Næsta skref, ef nefndin skilar endanlegum tillögum, er meðferð á Alþingi og að lokum þjóðaratkvæðagreiðsla, yrði málið samþykkt á Alþingi.
Með þessari tillögu er lagt til að Píratar styðji að frumvarp þetta fái þinglega meðferð og þá í framhaldinu mögulega í þjóðaratkvæðagreiðslu. Í því felst ekki flokksmenn gefi þingmönnum Pírata fyrirmæli um að greiða atkvæði á einn eða annan veg, enda yrðu þeir ekki bundnir af slíku sbr. ákvæði stjórnarskrárinnar.
Um þessa ályktun geta flokksmenn kosið á hvaða forsendum sem er og við undirbúning tillögunnar var lögð áhersla á að binda stuðning eða höfnun ekki við neinar tilteknar forsendur. Hver og einn flokksmaður getur greitt atkvæði og stutt eða hafnað tillögunni á sínum eigin forsendum.