Umboðsmenn Pírata

Tillaga þessi hefur verið samþykkt með atkvæðagreiðslu.

Formáli

Frumvarp þetta til lagabreytinga er efnislega byggt á frumvarpi um Stýrimenn sem hafnað var í atkvæðagreiðslu eftir góðar athugasemdir frá fundarmönnum á Aðalfundi Pírata 2016. Hér er að öllu leyti tekið tillit til þeirra athugasemda og eftirfarandi var lagað:

  1. Handhafar erindisbréfs heita nú Umboðsmenn en ekki Stýrimenn.
  2. Krafa er nú gerð um að erindisbréf frá Aðalfundi fari í gegnum sama staðfestingarferli og bréf frá almennum félagsfundi.
  3. Skilgreind er heimild til afturköllunar erindisbréfs umboðsmanna sbr. 13. gr.

Greinargerð

Píratarpartýið leggur megináherslu á beint lýðræði og hefur flokkurinn því flatan skipulagsstrúktur þvi í flokknum er megináhersla lögð á sjálfsstjórn og að að æðsta vald sé í höndum grasrótarinnar. Þvi hafa Píratar forðast að búa til föst embætti þar sem völd safnast fyrir. Þetta hefur leitt til ákveðinna vandamála sem helgast af umboðsskorti. Mjög illa hefur gengið að ganga verk sem vinna þarf þvi iðulega er óljóst hvort umboð er til verka og þá hver er handhafi þess umboðs. Þetta hefur leitt til þess að völd og verk hafa haft tilhneigingu til að lenda á framkvæmdaráði flokksins, sam aldrei var ætlað að sinna öðru en almennum reksri félagsins. Þetta hefur ennfremur leitt til þess að upp hafa komið hugmyndir um að hinn flati strúktúr flokksins sé lítt nothæfur í praxis og því þurfi Píratar að mynda innri strúktur sem byggir á stigskiptingu með formönnum, fastanefndum og öðrum valdhöfum. Fyrirsjáanlegt er, að ef Pírötum vex fiskur um hrygg og öðlast aukna lýðræðislega ábyrgð, muni enn rammar kveða að þeim vanda sem hér hefur verið lýst

Í þessari viðbót við lög Pírata er lögð áhersla á að breyta ekki grunnstrúktúr flokksins. Föst, ótimabundin völd sem tengjast ákveðnum föstum embættum verða ekki til þvi allt umboð umboðsmanna er kyrfilega tímabundið og tengt skilgreindum verkefnum. Staða umboðsmanna færir Pírötum hins vegar lagalega undirstöðu undir veitingu og meðhöndlun umboðs í mikilvægum verkefnum þarf að vera hafið yfir vafa. Dæmi um verkefni sem fela má umboðsmönnum eru myndun rikisstjórnar, samningar við aðra stjórnmalaflokka, val á ráðherrum og öðrum embættismönnum fyrir flokkinn, samskipti við fjölmiðla við tilteknara aðstæður eða almennt o.s.frv.

Fundargerð fundar gærdagsins má lesa hér:
https://www.facebook.com/events/542446632608145/544974779021997/?notift=like&notifid=1468273823191787

Málsnúmer: 57/2016
Tillaga:Umboðsmenn Pírata
Höfundur:mordur
Í málaflokkum:Innra skipulag Pírata
Upphafstími:09/07/2016 15:45:28
Atkvæðagreiðsla hefst:24/07/2016 00:00:00 (0 mínútur)
Atkvæðagreiðslu lýkur:31/07/2016 00:00:00 (0 mínútur)
Atkvæði: 124 (5 sitja hjá)
Já: 98 (79.03%)
Nei: 26
Niðurstaða:Samþykkt
Meirihlutaþröskuldur:66.67%

Umræða

Þessu máli lauk fyrir nokkru síðan og er því krafist innskráningar til að sjá umræðu.