Grunnstefna Pírata
Tillaga þessi hefur verið samþykkt með atkvæðagreiðslu.
            
        
        | Málsnúmer: | 2/2013 | 
|---|---|
| Tillaga: | Grunnstefna Pírata | 
| Höfundur: | smari | 
| Í málaflokkum: | Innra skipulag Pírata | 
| Atkvæðagreiðslu lýkur: | 01/01/2013 00:00:00 (0 minutes) | 
| Sérstakur ferill: | Samþykkt á samkomu | 
| Meirihlutaþröskuldur: | 50,00% | 
Umræða
Þessu máli lauk fyrir nokkru síðan og er því krafist innskráningar til að sjá umræðu.
Declarations
- Píratar leggja áherslu á gagnrýna hugsun og vel upplýstar ákvarðanir.
 
- Í þessu felst að Píratar móti stefnu sína í ljósi gagna og þekkingar sem er aflað óháð því hvort tillaga virðist í fyrstu æskileg eða ekki. Afstaða Pírata til hugmynda er óháð því hverjir fortalsmenn hennar eru.
 - Fyrri ákvarðanir Pírata þurfa alltaf að geta sætt endurskoðun.
 - Réttur einstaklinga til að leita þess að verða upplýstir skal aldrei skertur.
 - Píratar beita sér fyrir eflingu og verndun borgararéttinda.
 - Útvíkkun borgararéttinda skal miða að styrkingu annarra
 - Standa þarf vörð um núverandi réttindi og gæta þess að þau séu ekki skert.
 - Píratar telja að borgararéttindi tilheyri einstaklingum, og að réttur hvers og eins sé jafn sterkur.
 - Friðhelgi einkalífsins snýst um vernd hinna valdaminni frá misbeitingu hinna valdameiri.
 - Píratar telja að allir einstaklingar eigi rétt á friðhelgi í sínu einkalífi.
 - Til friðhelgi telur réttur til leyndar, nafnleysis, og sjálfsákvörðunarréttar
 - Leynd á aldrei að ná lengra en þörf er til að vernda einstaklinginn, en aldrei svo langt að það hafi áhrif á aðra einstaklinga
 - Nafnleysi hefur ekki þann tilgang að skjóta einstaklingi undan ábyrgð
 - Gagnsæi snýst um að opna hina valdameiri gagnvart eftirliti hinna valdaminni.
 - Píratar telja gegnsæi eiga mikilvægan þátt í að almenningur sé upplýstur og þar af leiðandi hæfur til lýðræðislegrar ákvörðunartöku.
 - Upplýsingar eiga að vera aðgengilegar almenningi
 - Upplýsingar skulu vera aðgengilegar á opnum gagnasniðum, á því formi sem er hentugast upp á notagildi upplýsinganna.
 - Til að einstaklingur geti borið ábyrgð þarf hann að hafa getu til að taka ákvarðanir.
 - Píratar telja að allir hafi óskoraðan rétt til aðkomu að ákvörðunum sem varða eigin málefni, og rétt til vitneskju um það hvernig slíkar ákvarðanir hafi verið teknar.
 - Takmörkun á frelsi fólks til að safna og miðla upplýsingum er óásættanleg, nema til verndar borgararéttindi einstaklinga
 - Takmörkun á frelsi fólks til að tjá sig er óásættanleg, nema til verndar borgararéttindi einstaklinga
 - Píratar telja að allir hafi rétt til að koma að ákvarðanatöku um málefni sem varða þá.
 - Réttur er tryggður með styrkingu beins lýðræðis og eflingu gegnsærrar stjórnsýslu.
 - Píratar telja að draga þurfi úr miðstýringu valds á öllum sviðum og efla þurfi beint lýðræði í þeim formum sem bjóðast.