Varnarmál
Tillaga þessi hefur verið samþykkt með atkvæðagreiðslu.
Stefnumörkun um varnarmál
Málsnúmer: | 7/2013 |
---|---|
Tillaga: | Varnarmál |
Höfundur: | smari |
Í málaflokkum: | Þjóðaröryggi |
Upphafstími: | 24/01/2013 17:36:09 |
Atkvæðagreiðsla hefst: | 29/01/2013 18:43:44 (0 minutes) |
Atkvæðagreiðslu lýkur: | 14/02/2013 12:00:00 (0 minutes) |
Atkvæði: | 19 (4 sitja hjá) |
Já: | 13 (68,42%) |
Nei: | 6 |
Niðurstaða: | Samþykkt |
Meirihlutaþröskuldur: | 50,00% |
Umræða
Þessu máli lauk fyrir nokkru síðan og er því krafist innskráningar til að sjá umræðu.
Assumptions
- þarfarinnar á auknu varnarsamstarfi við norðurlönd, með það að markmiði að hætta að einblína eingöngu á varnarsamstarf í gegnum NATO.
- eðlilegrar hlutverkaskiptingar milli borgaralegra löggæslustofnanna og stofnana sem berjast gegn óvinum ríkisins,
- þarfarinnar á verndun borgaralegra réttinda með því að gera greinarmun á varnarmálahlutverki og löggæsluhlutverki,
- þarfarinnar á að Íslendingar séu upplýstir um þá staðreynd að Ísland á sér sögu í framleiðslu hergagna og hráefna til framleiðslu þeirra.
Declarations
- Gera á heildarúttekt á upplýsingaöryggi ríkisins, þá sérstaklega með tilliti til öryggis í tölvukerfum stjórnarráðsins, Alþingis, og dómsstóla, sem og tölvukerfi almennings.
- Hafna skal hernaðaruppbyggingu í Norður-Atlantshafi og Íshafinu.
- Stuðla skal að stórauknu samstarfi með nágrannaþjóðum okkar þegar kemur að eftirliti með landhelgi, lofthelgi og efnahagslögsögu, sem og björgunarstörfum á Norður-Atlantshafinu og Íshafinu.
- Endurvekja skal Varnarmálastofnun með það að markmiði að halda borgaralegum löggæslumálum og varnarmálum aðskildum, og þar með auka gagnsæi í varnarmálum.
- Fella skal Landhelgisgæsluna undir Varnarmálastofnun, til að bæta aðgengi hennar að búnaði sem hún þarf á að halda og telst vera hernaðarlegur.
- Auka þarf fjárveitingar til Landhelgisgæslunnar, með það að markmiði að stofnunin þurfi ekki að afla sértekna með verkefnum erlendis, á kostnað verkefna innanlands.
- Óháð aðild Íslands að Evrópusambandinu skal ríkislögreglustjóri og íslenska tölvuöryggisviðbragðsteymið (CERT) hefja samvinnu við Net- og upplýsingaöryggisstofnun Evrópusambandsins (ENISA) varðandi netvarnir.