Tillaga um breytt hlutverk formanns félags Pírata
Málsnúmer: | 3/2020 |
---|---|
Tillaga: | Tillaga um breytt hlutverk formanns félags Pírata |
Höfundur: | Gormur |
Í málaflokkum: | Innra skipulag Pírata |
Upphafstími: | 29/01/2020 14:43:56 |
Umræðum lýkur: | 19/02/2020 15:00:00 (0 minutes) |
Atkvæðagreiðsla hefst: | 12/02/2020 15:00:00 (0 minutes) |
Atkvæðagreiðslu lýkur: | 19/02/2020 15:00:00 (0 minutes) |
Atkvæði: | 68 (4 sitja hjá) |
Já: | 22 (32,35%) |
Nei: | 46 |
Niðurstaða: | Hafnað |
Meirihlutaþröskuldur: | 66,67% |
Umræða
Þessu máli lauk fyrir nokkru síðan og er því krafist innskráningar til að sjá umræðu.
Þessi tillaga heitir Tillaga um breytt hlutverk formanns félags Pírata.
Hún er sett inn í kosningakerfi Pírata ásamt annarri sem fjallar um sömu mál og
heitir Tillaga um formann, varaformann og forsætisnefnd. Kosið er um tillögurnar samhliða en þessi tillaga tekur aðeins gildi ef hin tillagan er felld.
Gr.
Grein 14.6. fjalli brott í núverandi mynd og í stað hennar komi ný grein í tveimur liðum:
14.6.
a) Við upphaf hvers þings skal þingflokkur Pírata velja úr sínum röðum þingmann til að gegna hlutverki talsmanns þingflokksins gagnvart öðrum stjórnmálaflokkum. Á hverju kjörtímabili getur hver þingmaður aðeins gegnt þessu hlutverki í tvö ár að hámarki. Umræddur talsmaður skal teljast formaður félags Pírata gagnvart Alþingi, sé flokkurinn í minnihluta á þingi.
b) Þrátt fyrir ákvæði a-liðar er heimilt að bera upp tillögu á aðalfundi eða auka-aðalfundi um kosningu nýs talsmanns þingflokks Pírata, sem fram fari í rafrænni atkvæðagreiðslu meðal félagsmanna Pírata, ef tillaga kemur um það frá fimmtíu félagsmönnum a.m.k. 30 dögum fyrir aðalfund.Gr.
Við bætist ný grein:
14.8.
a) Þrátt fyrir ákvæði greinar 14.6 skulu allir kjörnir þingmenn Pírata sem gegndu 1. sæti á framboðslista Pírata í síðastliðnum kosningum hverju sinni fara saman með umboð til að semja um myndun ríkisstjórnar við aðra stjórnmálaflokka, ásamt talsmanni þingflokks Pírata. Hefur þessi hópur sömuleiðis umboð til að velja úr sínum hópi færri einstaklinga til að koma fram fyrir þeirra hönd í samningaviðræðum við aðra flokka um myndun ríkisstjórna. Komi upp ágreiningur þeirra á milli um myndun ríkisstjórnar skal ½ hluta þeirra heimilt að skjóta þeim ágreiningi til sérstakrar rafrænnar atkvæðagreiðslu meðal félagsmanna Pírata, sem standa skal yfir í 48 tíma.
b) Ríkisstjórnarsáttmála skal samþykkja í sérstakri rafrænni atkvæðagreiðslu sem stendur yfir í 48 tíma. Tillögu um slit á ríkisstjórnarsáttmála má bera upp á aðalfundi eða auka-aðalfundi ef tillaga kemur um það frá fimmtíu félagsmönnum a.m.k. 3 vikum fyrir aðalfund. Tillagan telst samþykkt ef ⅔ hlutar greiða henni atkvæði.- Gr.
Verði “tillaga um formann, varaformann og forsætisnefnd” sem lögð hefur verið til á félagsfundi 25. janúar 2020 samþykkt í kosningakerfi Pírata telst þessi tillaga sjálfkrafa fallin niður og ógildist í heild sinni.
Greinargerð
Með þessari tillögu er fallist á þær röksemdir gegn núverandi fyrirkomulagi sem lagðar eru fram í greinargerð með tillögu um formann, varaformann og forsætisnefnd innan Pírata. Núverandi fyrirkomulag býður upp á það að formaður þingflokks hafi of mikið vald í samskiptum við aðra flokka innan þings, án þess að hafa til þess umboð eða sæta formlegri ábyrgð gagnvart flokknum. Þar að auki virðist hætt við því að einstaka þingmenn taki til sín málsvarsvald fyrir flokkinn umfram aðra þingmann án þess að til séu ferlar til að veita sérstakt umboð til þess, eða tryggja ábyrgð í því hlutverki. Tillagan er lögð fram í þeim tilgangi að bregðast við þessum ókostum núverandi ástands, án þess að ganga jafnlangt og tillaga um formann, varaformann og forsætisnefnd gerir.
Með þessari tillögu er gert ráð fyrir því að þingflokkur Pírata velji sérstaklega talsmann þingflokksins úr sínum röðum og að brott falli ákvæði núverandi greinar 14.6. um að formaður félags Pírata gagnvart Alþingi sé slembivalinn úr þeirra hópi og hafi engin pólitísk völd. Með því er gert ráð fyrir að umræddur talsmaður hafi formlegt umboð þingflokksins til að gegna því hlutverki sem formenn annarra stjórnmálaflokka gera á fundum formanna stjórnmálaflokka, og sæti ábyrgð gagnvart þingflokki (og gagnvart kjósendum í næstkomandi prófkjöri og kosningum) í samræmi við það umboð. Jafnframt er gert ráð fyrir því að enginn þingmaður geti gegnt þessu embætti lengur en í tvö ár á hverju kjörtímabili, svo að ákveðinn stöðugleiki geti verið um þetta hlutverk en að reglubundin hlutverkaskipting sé jafnframt tryggð. Til þess að styrkja ábyrgð talsmanns þingflokks Pírata umfram þá ábyrgð sem vænta má að kjörinn þingmaður flokksins gegni gagnvart félagsmönnum er sérstaklega bætt við ákvæði í b-lið, þar sem félagsmönnum er gert kleift að krefjast kosningar nýs talsmanns Pírata, með sömu skilyrðum og sett eru í tillögu um formann, varaformann og forsætisnefnd að nýrri grein 10.a.7.
Jafnframt er lagt til að ný grein bætist við lög Pírata, nr. 14.8., sem festi í sessi fyrirkomulag um umboð til ríkisstjórnarmyndunar af hálfu Pírata. Með því er gert ráð fyrir að þeir oddvitar Pírata (1. sæti á sínum framboðslista) sem náðu kjöri í síðastliðnum þingkosningum fari saman með þetta umboð, ásamt talsmanni þingflokks Pírata (ef viðkomandi kemur ekki úr þeirra hópi). Gert er ráð fyrir að þessi hópur hafi umboð til þess að taka ákvarðanir um ríkisstjórnarmyndun og tilnefna tiltekna fulltrúa er sínum hópi til samningaviðræðna við aðra flokka um myndun ríkisstjórnar, svo að ekki sé nauðsynlegt að allt að sjö þingmenn taki beinan þátt í slíkum samningaviðræðum.