Lagabreyting um kjörstjórn
Nýr kafli 14 a/b KjörstjórnnKjörstjórn Pírata sér um samhæfingu kosningastarfs og tryggir að skilyrði framboðs séu uppfyllt, aðilar kjörstjórnar hafa ekki kjörgengi í prófkjörum en mega taka sæti á lista fyrir neðan þau sem kosið var í. nVið alþingiskosningar starfar kjörstjórn með kjördæmisráði í kjördæmi sé það til staðar. Sé ekki starfandi kjördæmisráð í kjördæmi skal kjörstjórn sjá um prófkjör og annað tengt framboði eftir atvikum í samstarfi við frambjóðendur og stjórn kjördæmafélags. nVið sveitarstjórnarkosningar starfar kjörstjórn með stjórn aðildarfélaga/kjördæmafélaga að prófkjörum þar sem Píratar hyggjast bjóða fram og tryggir í samstarfi við stjórnir og frambjóðendur að skilyrði framboðs séu uppfyllt. nÍ kjörstjórn sitja þrír einstaklingar sem kosnir eru í beinni kosningu á aðalfundi. Sé ekki starfandi kjörstjórn er framkvæmdastjórn heimilt að skipa aðila í kjörstjórn nKjörstjórn auglýsir og opnar fyrir kosningu í framboð í öllum kjördæmum eða sveitarfélögum sem bjóða á fram í, heimilt er að halda sameiginleg framboð í kjördæmum við alþingiskosningar. Kjörstjórn metur framboðsfrest sem má vera minnst 1 dagur. Kosning skal standa yfir í einn sólarhring og fara fram með Schulze forgangsröðun. Heimilt er að takmarka fjölda framboðssæta sem kosið er um að minnsta kosti 5 sæti í hverju kjördæmi eða sveitarfélagi, tilkynnt skal um takmörkun á fjölda sæta þegar auglýst er eftir framboðum.nKjörstjórn staðfestir að frambjóðendur taki sæti á framboðslista samkvæmt niðurstöðu kosninga. Frambjóðendur mega færa sig niður um sæti og færast þá aðrir frambjóðendur ofar á lista eftir því.nKjörstjórn tilkynnir niðurstöður kosninganna eftir að allir frambjóðendur hafa staðfest sæti sitt á framboðslista. Í tilkynningu kosninga skal koma fram hversu mörg atkvæði frambjóðendur þau sæti sem kosið er um í hverju kjördæmi eða sveitarfélagi fengu. Hverjum frambjóðanda er heimilt að óska eftir upplýsingum um fjölda atkvæða sem viðkomandi fékk.nHver framboðslisti velur sér kosningastjórn kjördæmis eða sveitarfélags og ber ábyrgð á því að fylla upp í framboðslista, fá staðfestingu allra í framboði og safna undirskriftum. Skila skal tilbúnum framboðslista til viðeigandi kjörstjórnar fyrir tilskilinn tímafrest samkvæmt kosningalögum nr. 112/2021.
Málsnúmer: | 2/2024 |
---|---|
Tillaga: | Lagabreyting um kjörstjórn |
Höfundur: | Kristin |
Í málaflokkum: | Innra skipulag Pírata |
Upphafstími: | 04/04/2024 14:19:22 |
Umræðum lýkur: | 10/04/2024 23:19:22 (0 minutes) |
Atkvæðagreiðsla hefst: | 04/04/2024 23:19:22 (0 minutes) |
Atkvæðagreiðslu lýkur: | 10/04/2024 23:19:22 (0 minutes) |
Atkvæði: | 22 (1 sitja hjá) |
Já: | 20 (90,91%) |
Nei: | 2 |
Niðurstaða: | Samþykkt |
Meirihlutaþröskuldur: | 66,67% |
Umræða
Þessu máli lauk fyrir nokkru síðan og er því krafist innskráningar til að sjá umræðu.