Aðskilnaður fjárfestinga- og viðskiptabanka
Tillaga þessi hefur verið samþykkt með atkvæðagreiðslu.
Lagt er til að Píratar hafi það að stefnu að innlánsstofnunum sé meinað að standa í áhættufjárfestingum.
| Málsnúmer: | 20/2013 |
|---|---|
| Tillaga: | Aðskilnaður fjárfestinga- og viðskiptabanka |
| Höfundur: | odin |
| Í málaflokkum: | Efnahagur og opinber tölfræði |
| Upphafstími: | 05/03/2013 17:06:35 |
| Atkvæðagreiðsla hefst: | 17/03/2013 17:06:35 (0 minutes) |
| Atkvæðagreiðslu lýkur: | 23/03/2013 17:06:35 (0 minutes) |
| Atkvæði: | 23 |
| Já: | 22 (95,65%) |
| Nei: | 1 |
| Niðurstaða: | Samþykkt |
| Meirihlutaþröskuldur: | 50,00% |
Umræða
Þessu máli lauk fyrir nokkru síðan og er því krafist innskráningar til að sjá umræðu.
Með tilvísun til
- greinar stefnu Pírata um samkeppnismál
og hliðsjón af
þingsályktunartillögum um aðskilnað milli starfsemi fjárfestingabanka og viðskiptabanka á 140. og 141. löggjafarþingi
og þeirri skökku samkeppnisaðstöðu sem tryggingar innistæðna veita innlánsstofnunum þegar kemur að áhættufjárfestingum
álykta Píratar eftirfarandi:
- Nauðsynlegt er að aðskilja starfsemi innlánsstofnana og áhættufjárfesta þannig að ekki sé mögulegt að nýta tryggðar innistæður í áhættuviðskiptum.