Samþykkt: Breytingar á lögum Pírata í Kópavogi
1.0 Heiti félagsins
1.1. Heiti félagsins er Píratar í Kópavogi. Aðsetur þess og varnarþing er
í Kópavogi.
2.0 Hlutverk félagsins
2.1. Félagið er aðildarfélag stjórnmálaflokksins Pírata. Starfssvæði þess
er Kópavogur.
2.2. Félagið setur sér stefnu í opnu ferli og vinnur að framgangi hennar
og stefnu Pírata með öllum þeim aðferðum sem því standa til boða. Félagið
ber ábyrgð á framboði undir nafni Pírata til sveitarstjórnarkosninga á
starfssvæði sínu.
3.0 Aðild að félaginu
3.1. Hver sem er 16 ára á árinu eða eldri og hefur lögheimili eða fasta
búsetu í Kópavogi getur fengið fulla aðild að félaginu.
3.2. Félagi í félaginu er sjálfkrafa aðili að Pírötum.
4.0 Stjórn félagsins
4.1. Stjórn félagsins annast almenna stjórn og rekstur félagsins.
Firmaritun er í höndum meirihluta stjórnar.
4.2. Í stjórn félagsins sitja fimm manns sem skipta með sér verkefnum.
Formaður stjórnar eða meirihluti stjórnarmeðlima geta boðað til funda. Auk
formanns skulu skipaðir gjaldkeri og ritari.
4.3. Stjórn félagsins skal kosin á aðalfundi auk fimm varamanna til
stjórnar. Kosning skal fara fram með Schulze aðferð.
4.4. Sigurvegari kosninga verður formaður Pírata í Kópavogi.
4.5. Hljóti eingöngu frambjóðendur af einu tilteknu kyni kosningu í stjórn
félagsins skal skipta út þeim sem hlaut síðasta sætið í stjórninni fyrir
næsta frambjóðanda sem er ekki af því kyni.
4.6. Missi stjórnarmeðlimur kjörgengi í stjórn félagsins á meðan
kjörtímabilinu stendur skal hann víkja tímabundið úr henni þar til hann
öðlast aftur kjörgengi og skal varamaður koma í hans stað. Varamaðurinn
skal öðlast þau réttindi sem aðalmaður fékk við sitt kjör.
4.7. Séu færri en þrír stjórnarmeðlimir með kjörgengi skal boða til
aukaaðalfundar eins fljótt og mögulegt er og kjósa í stjórn að nýju.
4.8. Kjörgengur til stjórnar félagsins er hver sá aðili sem skráður er í
félagið og gegnir ekki kjörnum embættum til sveitarstjórnar eða Alþingis.
5.0 Aðalfundur
5.1. Boða skal til aðalfundar með þriggja vikna fyrirvara og með
sannanlegum hætti. Aðalfundur er löglegur, sé rétt til hans boðað.
Aðalfundur Pírata skal hafa rétt til þess að boða aðalfund í félaginu.
5.2. Einfaldur meirihluti skráðra aðila félagins sem viðstaddir eru
aðalfund ræður úrslitum mála nema um annað hlutfall sé kveðið í lögum
þessum. Allir viðstaddir skulu hafa málfrelsi og tillögurétt.
5.3. Að minnsta kosti eftirfarandi dagskráliðir skulu vera á dagskrá
aðalfundar:
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
2. Skýrsla stjórnar lögð fram
3. Reikningar lagðir fram til samþykktar
4. Lagabreytingar
5. Kosning stjórnar
6. Kosning varamanna í stjórn
7. Kjörnir tveir skoðunarmenn reikninga
8. Kosning í önnur embætti samkvæmt lögum þessum
9. Önnur mál
Að öðru leiti skipuleggur stjórn dagskrá aðalfundar
5.4. Á félagsfundi samkvæmt sjöunda kafla er hægt að leggja fram tillögu
um að boða til auka aðalfundar. Slík tillaga skal koma fram í fundarboði.
Sé hún samþykkt á fundinum skal hún sett í kosningu í kosningarkerfi
Pírata til samþykktar eða synjunar.
Sé hún samþykkt með að minnsta kosti tveimur þriðja atkvæða er stjórn
skylt að boða auka aðalfund eins fljótt og mögulegt er. Stjórn hefur
einnig sjálfstæða heimild til að boða til auka aðalfundar.
Á auka aðalfundi er ekki skylt að taka á dagskrá alla liði sem lög þessi
segja fyrir um á aðalfundi.Hafi tillaga um boðun auka aðalfundar innifalið
skilyrði um dagskrá fundarins skal stjórn þó fylgja þeim.
5.5. Aðalfund Pírata í Kópavogi skal halda ár hvert.
5.6. Starfsár stjórnar er frá aðalfundi til aðalfundar. Stjórn Pírata í
Kópavogi skal skila gögnum aðalfundar, fundargerð, ársskýrslu og
bókhaldsgögnum innan mánaðar frá því að fundurinn var haldinn.
5.7. Rekstrarár Pírata í Kópavogi er frá 1. janúar til 31. desember.
Stjórn Pírata í Kópavogi skal gera upp ársreikning hvers reikningsár eigi
síðar en apríl og skila uppgjöri til framkvæmdaráðs innan mánaðar. Stjórn
gætir þess að framkvæmdaráði Pírata hafi borist öll nauðsynleg gögn um
starfsemi félagsins skv. grein 10.3 í lögum Pírata fyrir lok júnímánaðar
ár hvert.
5.8. Á aðalfundi skulu kosnir tveir skoðunarmenn reikninga.
6.0 Lög, stefnumál og atkvæðagreiðslur
6.1. Félagið telst starfhæft svo lengi sem ekki meira en 18 mánuðir hafa
liðið frá því að síðasti aðalfundur þess var haldinn og að auki séu engir
kjörnir fulltrúar starfandi í embættum af hálfu félagsins.
6.2. Lögum félagsins má breyta á aðalfundi með 2/3 atkvæða aðila félagsins
sem sitja aðalfund. Einnig má breyta þeim með samþykki 2/3 greiddra
atkvæða í rafrænu kosningakerfi Pírata og skulu boð send út til
félagsmanna um að lagabreytingatillaga sé til kosningar þegar hún hefst.
6.3. Tillögur að breytingum á lögum skal birta opinberlega á vettvangi
flokksins minnst einni viku áður en kosið er um þær. Breytingartillögur að
áður birtum tillögur að breytingum á lögum skal birta opinberlega minnst
tveimur dögum dögum áður en kosið er um þær. Ekki er hægt að leggja fram
breytingartillögu að lagabreytingar tillögum í kosningarkerfinu, aðeins á
aðalfundi.
6.4. Atkvæðarétt innan rafræns kosningakerfis Pírata hafa þeir félagar í
Pírötum í Kópavogi sem jafnframt hafa verið félagar í Pírötum í að minnsta
kosti 30 daga samfellt.
6.5. Stefnu má ákveða með einföldum meirihluta í gegnum rafræn
kosningakerfi Pírata.
6.6. Stefna skal alltaf rökstudd og hafa tilvísun í fyrri ákvarðanir
félagsins eða Pírata. Stefnur Pírata skulu einnig hafa gildi sem stefnur
félagsins nema ákveðið sé sérstaklega að tilteknar stefnur eigi ekki við
eða að þær skulu útfærðar á annan tiltekinn hátt.
6.7. Með samþykki 5% fundarmanna á almennum félagsfundi, en lágmark
þriggja, skal vísa tillögu að stefnu til rafrænna kosninga.
6.8. Þegar mál fer til afgreiðslu í rafrænt kosningakerfi Pírata skal vera
settur 5 sólarhringa umræðutími og fer kosning fram um leið og honum
lýkur. Kosning skal standa yfir í 5 sólarhringa.
6.9. Þegar málefni fer í rafrænt kosningakerfi skv. gr. 6.5 má leggja til,
með samþykki stjórnar félagsins, flýtimeðferð á atkvæðagreiðslunni en hún
stendur þá yfir í sólarhring eftir umræður í sólarhring. Slíka ákvörðun
þarf að staðfesta með hefðbundnum rafrænum kosningum sem fara af stað
samtímis. Skulu sérstök boð vera send til félagsmanna um að slík tillaga
sé til kosningar.
6.10. Stefna félagsins má aldrei ganga gegn grunnstefnu Pírata.
7.0 Félagsfundur
7.1. Fundir félagsins skulu að jafnaði vera opnir öllum.
7.2. Fundargestir skulu hafa tillögufrelsi, málfrelsi og atkvæðarétt.
7.3. Allar ákvarðanir á fundum eru teknar með einföldum meirihluta en þó
eigi færri en þremur athvæðum nema annað sé tekið fram í lögum þessum og
fara að jafnaði fram með handauppréttingu.
Sé óskað eftir því má fundarstjóri ákveða að hafa atkvæðagreiðslu skriflegar.
Sé óskað eftir því og 5% fundarmanna en aldrei færri en þrír skulu
kosningar vera leynilegar.
7.4. Boða skal til almennra félagsfunda með viku fyrirvara með
óvéfengjanlegum hætti.
Félagsfundur má taka ákvörðun um að tillaga einhvers utan fundarins sé
afgreidd. Þær skulu skriflegar og eintak afhent fundarritara til
varðveislu. Þó skal víkja frá þessu skilyrði ef tillaga barst með
fundarboði.
7.5. Félagsfundi má eingöngu halda á starfssvæði félagsins nema brýn
nauðsyn krefjist að félagsfundur fari fram utan þess.
8.0 Framboð
8.1. Ákvarðanir samkvæmt þessum kafla má taka með ákvörðun stjórnar eða
með ályktun félagsfundar nema annað sé sérstaklega tilgreint. Staðfesta
skal allar ályktanir félagsfunda í rafrænu kosningakerfi Pírata.
8.2. Félaginu er heimilt að stofna til kosningabandalags vegna
sveitarstjórnarkosninga með öðrum stjórnmálaflokkum. Slík ákvörðun skal
tekin með ályktun félagsfundar. Efni tillögunnar skal fylgja fundarboði.
8.3. Þegar ákvörðun hefur verið tekin um að félagið bjóði fram í tilteknum
kosningum skal tilkynna hana á vettvangi félagsins svo skjótt sem auðið
er. Auglýst skal eftir framboðum innan viku frá slíkri ákvörðun.
8.4. Ef atkvæðagreiðslur um framboðslista fara fram í rafrænu
kosningakerfi Pírata skal sú kosning standa yfir í að minnsta kosti 7
sólarhringa, en þó aldrei lengur en 10 sólarhringa.
8.5 Þrátt fyrir grein 6.4 hafa allir félagsmenn Pírata kosningarétt í
prófkjöri til sveitastjórnarkosninga. Þó má gera kröfu um að félagsmaður
hafi verið skráður um ákveðið tímabil áður en kosning fer fram.
8.6. Skipa skal tvo umboðsmenn fyrir framboðslista. Umboðsmenn bera ábyrgð
á móttöku framboða til framboðslistakosninga. Að framboðslistakosningu
lokinni bera umboðsmenn ábyrgð á að skila framboðsgögnum til kjörstjórnar.
8.7. Hafi frambjóðandi ekki skilað inn nauðsynlegum upplýsingum fjórum
sólarhringum áður en skila á framboðslista er heimilt að fella hann út af
listanum.
8.8. Frambjóðendur mega skila kynningu á sjálfum sér, sem koma skal
rafrænt á framfæri við alla félaga í félaginu.
8.9. Við framkvæmd kosninganna skal að öðru leyti fara eftir lögum Pírata
um framboðslistakosningar.
9.0 Ágreiningur
9.1. Ágreining um túlkun laga þessara og grunnstefnu Pírata má bera undir
úrskurðarnefnd Pírata. Um starfshætti úrskurðarnefndar Pírata fer eftir
hennar eigin reglum sem og lögum Pírata og grunnstefnu. Til hennar má
einnig áfrýja ákvörðunum fundarstjóra og stjórnar félagsins er varðar
formskilyrði.
9.2. Ágreiningi um formskilyrði atkvæðagreiðslu skal komið á framfæri
innan þriggja sólarhringa frá því hún fór fram eða frá því niðurstaða
hennar ætti að verið tilkynnt kvartanda, hvort sem kemur síðar. Hafi
kvartandi ekki verið á fundinum þar sem niðurstaðan varð ljós skal miða
við frá og með þeim tíma sem tilkynningin ætti að hafa borist til hans,
bréfleiðis eða rafrænt, hafi niðurstaðan verið tilkynnt með þeim hætti.
9.3 Sé misræmi milli þessara laga og laga Pírata skulu lög Pírata gilda.
10.0 Innkoma og rekstraratriði
10.1. Félaginu er heimilt að safna og taka á móti styrkjum ásamt því að
stunda sölu á vörum og þjónustu eftir því sem landslög leyfa.
10.2. Rekstrarafgangur/hagnaður af starfsemi félagsins í lok
starfstímabils skal fluttur óskertur til þess næsta.
10.3. Stjórn félagsins skal, fyrir lok júnímánaðar hvert ár, skila Pírötum
fundargerð aðalfundar,
ársskýrslu og bókhaldsgögnum síðastliðins árs til framkvæmdaráðs Pírata.
10.4. Skipti félagið starfsemi sinni frekar skal framkvæmdaráði Pírata
gerð grein fyrir þeirri skiptingu að því leyti sem hún hefur áhrif á
félagaskráningu.
11.0 Slit félagsins
11.1. Á félagsfundi skv. 7. kafla má bera upp tillögu um slit félagsins.
Hún skal eingöngu afgreidd hafi hún verið tilkynnt í fundarboði. Samþykki
aukinn meirihluti viðstaddra fundarmanna tillöguna skal kosið um hana í
rafrænu kosningakerfi Pírata í 7 sólarhringa þar sem þarf aukinn
meirihluta greiddra atkvæða til að slitin skoðist samþykkt.
11.2. Á aðalfundi skal heimilt að bera upp tillögu um slit félagsins. Hún
skal eingöngu afgreidd hafi hún verið tilkynnt í fundarboði. Samþykki
aukinn meirihluti atkvæðabærra aðila tillöguna skoðast slitin samþykkt.
11.3. Aðalfundur Pírata skal hafa heimild til þess að slíta félaginu.
11.4. Félaginu skal slitið sé það ekki lengur starfhæft samkvæmt lögum
þessum. Tilkynning um slitin skulu send til allra skráða aðila í félaginu
ásamt Pírötum.
11.5. Við slit félagsins skulu eignir þess, ef þeim er að dreifa, renna
til Pírata.
Tilheyrandi mál: | Breytingar á lögum Pírata í Kópavogi |
---|
Útgáfur
# | Staða | Höfundur | Lýsing |
---|---|---|---|
1 | Samþykkt | siggae |