Neyðarástand í loftslagsmálum
Atkvæðagreiðsla í flýtimeðferð samkvæmt grein 6.9 í lögum Pírata: „Sé þörf á skjótri ákvarðanatöku má leggja til, með samþykki framkvæmdaráðs, hraðmeðferð á tillögu, en hún stendur þá yfir í sólarhring. Slíka ákvörðun þarf að staðfesta með hefðbundnum kosningum sem fara af stað samtímis. Skulu sérstök boð vera send til félagsmanna um að slík tillaga sé til kosningar. Þó þarf ekki staðfestingarkosningu til að staðfesta yfirlýsingu félagsins í samræmi við lög um upplýsingaráð, enda er þar ekki um lög eða stefnu félagsins að ræða.“
Atkvæðagreiðsla til staðfestingar ályktunar: https://x.piratar.is/polity/1/issue/407/
Málsnúmer: | 11/2019 |
---|---|
Tillaga: | Neyðarástand í loftslagsmálum |
Höfundur: | valgerdur79 |
Í málaflokkum: | Umhverfismál, Þjóðaröryggi |
Upphafstími: | 21/08/2019 14:01:45 |
Umræðum lýkur: | 22/08/2019 15:00:00 (0 minutes) |
Atkvæðagreiðsla hefst: | 21/08/2019 15:00:00 (0 minutes) |
Atkvæðagreiðslu lýkur: | 22/08/2019 15:00:00 (0 minutes) |
Atkvæði: | 71 (1 sitja hjá) |
Já: | 62 (87,32%) |
Nei: | 9 |
Niðurstaða: | Samþykkt |
Meirihlutaþröskuldur: | 50,00% |
Umræða
Þessu máli lauk fyrir nokkru síðan og er því krafist innskráningar til að sjá umræðu.
Með tilvísun í:
Greinar §1 í grunnstefnu Pírata um gagnrýna hugsun og upplýsta stefnu
Greinar §4 í grunnstefnu Pírata um að Píratar telji að gagnsæi og upplýsingaaðgengilegi
Greinar §6 í grunnstefnu Pírata um beint lýðræði og sjálfsákvörðunarrétt.
Og með hliðsjón af:
Þingsályktunartillögu Pírata um grænan sáttmála. (Þingskjal 1531 — 911. mál)
Stefnu Pírata varðandi umhverfis, auðlinda og orkumál (https://x.piratar.is/polity/1/document/57/)
Nýrri stjórnarskrá sem samþykkt var í þjóðaratkvæðagreiðslu árið 2012
Álykta Píratar að:
Píratahreyfingin tekur undir áskorun helstu náttúruverndarsamtaka Íslands og skorar á forsætisráðherra að lýsa yfir neyðarástandi í loftslagsmálum. Við leggjum jafnframt til að forsætisráðherra í kjölfarið leggi fram tillögur að grænum sáttmála fyrir Ísland eins og þingsályktunartillaga Pírata um grænan sáttmála segir til um. (Þingskjal 1531 — 911. mál)
Greinargerð
Í nýrri stjórnarskrá segir:
> Náttúra Íslands er undirstaða lífs í landinu. Öllum ber að virða hana og vernda. Í því felst að fjölbreytni lands og lífríkis sé viðhaldið og náttúruminjar, óbyggð víðerni, gróður og jarðvegur njóti verndar. Fyrri spjöll skulu bætt eftir föngum. Nýtingu náttúrugæða skal haga þannig að þau skerðist sem minnst til langframa og gildi náttúrunnar og hagsmunir komandi kynslóða séu virt.
Fylgiskjal 1: Áskorunin sem tekið er undir
Forsætisráðherra Katrín Jakobsdóttir
16 ágúst 2019
Kæra Katrín!
Bretland lýsti nýlega yfir neyðarástandi í loftslagsmálum og því vekur það furðu að ekkert Norðurlandanna hefur gert slíkt hið sama. Gögnin eru skýr, það ríkir neyðarástand og unga kynslóðin okkar grátbiður okkur um að taka ábyrgð. Losun gróðurhúsalofttegunda frá Íslandi eykst hratt og er, miðað við höfðatölu, mun meiri en í nágrannalöndum okkar. Þar sem allir norrænu ráðherrarnir koma saman á Íslandi í næstu viku, viljum við hvetja þig til að lýsa yfir neyðarástandi í loftslagsmálum og skuldbinda okkur sem þjóð til að sýna alvöru ábyrgð. Jafnframt að þú hvetjir hina forsætisráðherrana til að gera slíkt hið sama. Framtíð okkar allra og komandi kynslóða er í húfi. Þú getur sannarlega haft mikil áhrif.
Með vinsemd og virðingu,
Rakel Garðarsdóttir, Vakandi
Hólmfriður Arnardóttir, Fuglavernd Íslands
Auður Önnu Magnúsdóttir, Landvernd
Brynhildur Pétursdóttur, Neytendasamtökin
Jón Kaldal IWF
Gunnhildur Fríða Hallgrímsdóttir, Samband íslenskra framhaldsskólanema
Eyþór Eðvarðsson, Votlendissjóður
Jóna Þórey Pétursdóttir Stúdentaráð Háskóla Íslands
Harpa Júlíusdóttir, Félag Sameinuðu þjóðanna á Ísland
Heiður Magný Herbertsdóttir, Plastlaus september
Tómas Guðbjartsson, Félag íslenskra fjallalækna
Stengrímur Þór Ágústsson, JCI Reykjavík
Pétur Halldórsson, Ungir umhverfissinnar
Árni Finnsson, Náttúruverndarsamtök Íslands
Þorbjörg Sandra Bakke, Foreldrar fyrir framtíðina
Bára Hólmgeirsdóttir, Aftur