Umhverfis- og loftslagsstefna

Þessi tillaga hefur verið dregin til baka af flutningsmanni eða umsjónarmanni.

Á félagsfundi Pírata þann 7. júlí 2021 var samþykkt að senda eftirfarandi ályktun í kosningu sbr. grein 6.7 í lögum Pírata.

Fundargerð félagsfundar: https://office.piratar.is/index.php/s/opkJmcCAEGk6CdM

Greinargerð ályktunarinnar:
Fyrir liggur framsýn stefna Pírata um aðgerðaráætlun í loftslagsmálum frá árinu 2016 sem nú sætir uppfærslu. Í aðdraga alþingiskosninga 2021 setja Píratar sér nýja og metnaðarfulla umhverfis- og loftslagsstefnu sem mætir þeim áskorunum sem baráttan við loftslagsvána hefur fært ríkjum heims. Í hinni nýju stefnu er einnig kveðið á um leiðir og aðgerðir er varða náttúruvernd, hringrásarsamfélagið, valdeflingu almennings í umhverfismálum og aðgerðir á alþjóðasviðinu.

Stefna þessi skiptist í átta kafla. Fyrstu fjórir kaflarnir taka á aðgerðum í umhverfismálum, og þá sérstaklega þeim sem snúa að viðbrögðum við lofslagsbreytingum. Fimmti kaflinn fjallar um náttúruvernd. Sjötti kaflinn fjallar um mótun hringrásarsamfélags, sá sjöundi um valdeflingu almennings og sá áttundi um aðgerðir á alþjóðasviðinu.

Með stefnunni er eldri stefna um aðgerðaráætlun Pírata í loftslagsmálum frá árinu 2016 felld úr gildi. Til viðbótar við stefnuna liggja einnig fyrir stefnur í nokkrum öðrum málaflokkum sem geta skipt sköpum fyrir umhverfis- og loftslagsmál, og koma til viðbótar við þessa stefnu. Þar má fyrst nefna stefnu um verndun hafsins nr. 4/2017, loftslagsaðlögunarstefnu nr. 10/2020 auk ályktunar um að lýsa yfir neyðarástandi í loftslagsmálum.

Einstakar greinar stefnunnar þarfnast ekki skýringa þar sem að í stefnunni felast bæði markmið sem og skilgreindar aðgerðir til að ná þeim markmiðum. Stefnan er ítarleg og víðtæk þegar kemur að umhverfis- og loftslagsmálum og viðbrögðum við þeim krefjandi viðfangsefnum sem nú blasa við á því sviði.

Málsnúmer: 24/2021
Tillaga:Umhverfis- og loftslagsstefna
Höfundur:BaldurK
Í málaflokkum:Umhverfismál
Atkvæðagreiðslu lýkur:08/07/2021 17:58:18 (0 mínútur)
Sérstakur ferill:Dregin til baka
Meirihlutaþröskuldur:50.00%

Umræða

Þessu máli lauk fyrir nokkru síðan og er því krafist innskráningar til að sjá umræðu.