Kosningastefnuskrá Pírata fyrir Alþingiskosningar 2021

Tillaga þessi hefur verið samþykkt með atkvæðagreiðslu.

Auðlesanleg útgáfa kosningastefnuskrár í pdf: https://office.piratar.is/index.php/s/fP4SoHZJX6weZWe

Stefnuskrá þessi hefur verið samþykkt á sameiginlegum fundi stefnu- og málefnanefndar 23. júlí 2021. Í grein 7.2.4 í lögum Pírata segir að í aðdraganda alþingiskosninga skuli stefnu- og málefnanefnd útbúa kosningastefnuskrá sem byggi á samþykktri stefnu flokksins að höfðu samráði við frambjóðendur. Kosningastefnuskrá skuli samþykkt með atkvæðagreiðslu í rafrænu kosningakerfi flokksins. Þetta ákvæði hefur haft að leiðarljósi í allri vinnu við gerð kosningastefnuskrárinnar og er þannig sérstaklega tilgreint í hverjum kafla stefnuskrárinnar á hvaða fyrirliggjandi almennu stefnu eða stefnum sá kafli byggir.

Að baki þessari stefnuskrá liggur mikil og rík stefnumótunarvinna af hálfu grasrótar og frambjóðenda. Undirbúningur kosningastefnuskrár hófst á Pírataþingi sem opið var allri grasrót flokksins helgina 13. - 14. febrúar. Þingið var haldið í fjarfundi, svo að allir Píratar hefðu möguleika á þátttöku, en markmið þingsins var að ræða og ákveða áherslur Pírata í komandi kosningum. Stefnumótun og áherslur fyrir kosningabaráttuna skyldu byggja á skilaboðum þingsins. Í kjölfar Pírataþingsins störfuðu málefnahópar sem unnu áfram að stefnumótun í hinum ýmsu málaflokkum. Úr þeirri vinnu komu fyrstu drög að þeirri kosningastefnuskrá sem hér er lögð fram, en drögin voru unnin áfram af frambjóðendum Pírata eftir að prófkjörum lauk og ljóst var hver myndu koma fram fyrir hönd Pírata í komandi kosningabaráttu.

Fulltrúar framboðslista allra kjördæma héldu sameiginlegar vinnustofur og fjölmarga fundi til að ljúka vinnunni við gerð kosningastefnuskrárinnar sem liggur nú fyrir. Í stefnuskránni felst ekki afstaða gagnvart forgangsröðun málefna og er efni hennar er skipt í 24 kafla. Á áðurnefndum sameiginlegum fundi stefnu- og málefnanefndar og frambjóðenda var einróma samþykkt að setja stefnuskrá þessa í rafrænt kosningakerfi flokksins til samþykktar og staðfestingar grasrótar.

Fundargerð sameiginlegs fundar stefnu- og málefnanefndar og frambjóðenda 23. júlí 2021: https://office.piratar.is/index.php/s/aSWQCbXkCKwbPNC

Málsnúmer: 35/2021
Tillaga:Kosningastefnuskrá Pírata fyrir Alþingiskosningar 2021
Höfundur:BaldurK
Í málaflokkum:Innra skipulag Pírata
Upphafstími:24/07/2021 18:41:01
Umræðum lýkur:01/08/2021 18:45:00 (0 mínútur)
Atkvæðagreiðsla hefst:25/07/2021 18:45:00 (0 mínútur)
Atkvæðagreiðslu lýkur:01/08/2021 18:45:00 (0 mínútur)
Atkvæði: 60
Já: 59 (98.33%)
Nei: 1
Niðurstaða:Samþykkt
Meirihlutaþröskuldur:50.00%

Umræða

Þessu máli lauk fyrir nokkru síðan og er því krafist innskráningar til að sjá umræðu.